Háskólinn á Akureyri

{{sxs parseStefTag(172,0)}}

Grunnskólakennarfrćđi

Markmið grunnskólabrautar
Markmið grunnskólabrautar eru að mennta nemendur til kennslu í grunnskólum landsins og búa þá undir frekara nám í fræðum sínum.

Í námi til B.Ed.-prófs á grunnskólabraut er lögð áhersla á að mennta kennara sem geta lagt gagnrýnið og ígrundað mat á menntamál ásamt því að hafa þekkingu, færni og viðhorf sem gerir þeim kleift að takast á hendur þau uppeldishlutverk sem kennsla leggur þeim á herðar. Á grunni þessa er náminu ætlað að veita kennaranemum trausta þekkingu á kennslu- og námskrárfræðum sem og á einstökum námsgreinum grunnskólans. Sérstök rækt er lögð við verklega þjálfun kennaraefna með löngu samfelldu vettvangsnámi.

Á fyrsta ári námsins fá nemendur sameiginlegan grunn í aðferðafræði, hugmyndafræði kennaranáms og kjarnagreinum grunnskólans. Sérhæfing hefst svo með kjörsviðsvali á öðru ári. Þar eru í boði: nám og kennsla yngri barna; íslenska – mál og menning; náttúruvísindi og stærðfræði; listir, sem samkenndar eru með leikskólabraut. Þá er nám í nútímafræði (sjá félagsvísinda- og lagadeild) metið sem ígildi kjörsviðs. Til að kjörsvið sé kennt verða minnst tíu nemendur eða fleiri að velja það. Auk eigin kjörsviðs gefst nemendum kostur á að velja sér námskeið af öðrum kjörsviðum grunnskólabrautar, af leikskólabraut eða úr öðrum deildum HA, í þeim tilgangi að dýpka og breikka þekkingu sína.

Í fjarnámi er eitt svið í boði og eru þar valin saman námskeið af þeim námsleiðum sem staðnemum standa til boða.

Öllum nemendum stendur til boða að taka kjörsvið við Kennaraháskóla Íslands. Það þarf þó að gera í samráði við brautarstjóra.

Fyrirkomulag kennslu - stað- og fjarnám
Kennsla á grunnskólabraut fer bæði fram í staðnámi og fjarnámi. Námskeiðslýsingar eru þær sömu og fjöldi námseininga sá sami. Námstíma í fjarnámi er deilt á fjögur ár í stað þriggja í reglubundnu staðnámi. Í fjarnámi er aðeins ein námsleið, þ.e. ekki er val um kjörsvið. Fjarnemum er kennt um myndfundabúnað og með tölvusamskiptum. Deildin áskilur sér rétt til að ákveða lágmarksfjölda þátttakenda á fyrsta námsári sem og í námshópi á hverjum fjarenda.


Kennaradeild
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ástríđur Ólafsdóttir

„Í mínum huga var líftćkninámiđ viđ HA heillandi vegna sérstöđu sinnar og tengingar viđ viđskiptafrćđilega hliđ fagsins.“

Ástríđur Ólafsdóttir nemandi í líftćkni
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf