Kennarafræði B.Ed.
Nám til B.Ed.-gráðu í kennarafræðum er fullt þriggja
ára nám og er jafnframt fyrri hluti fimm ára náms í kennarafræðum til M.Ed.-gráðu sem er forsenda kennsluréttinda (fyrsta innritun
í M.Ed.- hluta fimm ára námsins er haustið 2012). Að aflokinni B.Ed.-gráðu geta nemendur einnig valið að innrita sig í tveggja ára
meistaranám í menntunarfræðum til M.A.-gráðu.
Kennsluhættir og -tilhögun
Fyrsta námsár í fimm ára náminu er sameiginlegt öllum nemendum. Á öðru námsári hefst sérhæfing þeirra með
hliðsjón af því skólastigi sem þeir hyggjast starfa á. Á þriðja námsári auka nemendur enn frekar við
sérhæfingu sína með vali á kjörsviði. Þrjú kjörsvið eru í boði innan kennaradeildar HA en nemendum stendur jafnframt til
boða að leita kjörsviðssérhæfingar innan annarra deilda hug- og félagsvísindasviðs eða annarra sviða/deilda innan eða utan HA.
|
„Mér fannst kennaranámið við HA mjög áhugavert og sé ekki eftir því að hafa valið það. Ég ætla að sérhæfa mig í kennslu fyrir efsta stig grunnskóla og hlakka til að takast á við þá vinnu í framtíðinni.“ Valgerður Reykjalín |
![]() |
Félagslíf nemenda
Nemendur í kennaradeild á hug- og félagvísindasviði HA eiga sér nemendafélag sem nefnist Magister. Félagið stendur fyrir ýmsum
uppákomum, ýmist á eigin vegum eða innan ramma starfsemi Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA). Má þar nefna
vísindaferðir, sprellmót, kaffihúsakvöld og ýmislegt fleira í þeim dúr. Nánari upplýsingar eru á www.fsha.is/magister/



