Markmið leikskólabrautar
Í leikskólastarfi felast áhrif til mótunar nýrrar kynslóðar og ef þú velur nám við leikskólabraut velur þú áhugavert nám sem er grunnur að mikilvægu starfi. Það er markmið leikskólabrautar að mennta öfluga leikskólakennara til starfa í leikskólum landsins og búa þá undir frekara nám í leikskólafræðum.
Í námi til B.Ed.-gráðu á leikskólabraut er lögð áhersla á að nemendur öðlist trausta þekkingu á hlutverki leikskóla og kennsluháttum hans. Sérstök áhersla er lögð á eflingu gagnrýninnar hugsunar og heimspekilegrar ígrundunar þannig að nemendur geti lagt gagnrýnið mat á uppeldis- og menntamál og mótað eigin viðhorf til náms og uppeldis. Á grunni þessa kynnast nemendur ólíkri hugmyndafræði og stefnum um uppeldi og nám í leikskóla. Í því felst þekking á alhliða þroska barna og félagsmótun. Nemendur tileinka sér þekkingu á rannsóknum og hugmyndafræði um leik, listgreinar og rannsóknartengdar athafnir. Þeir læra að skipuleggja starf sitt í leikskóla; tileinka sér námskrárgerð, stjórnun deilda og fara í vettvangsnám á leikskólum. Vettvangsnámið er 15 vikur af námstíma og að verulegu leyti samfellt þannig að nemendur fái sem besta heildarsýn á leikskólastarfið. Í náminu er nemendum boðið upp á val á milli fjögurra 30 ECTS eininga kjörsviða þ.e: lista, náttúruvísinda, hugvísinda og einstaklingssniðins náms.
Fyrirkomulag kennslu
Kennsla á leikskólabraut fer fram í staðnámi og í fjarnámi til fjölmargra staða á landinu. Námskeiðslýsingar eru þær sömu og fjöldi námseininga sá sami óháð staðsetningu. Námstíma í fjarnámi er deilt á fjögur ár í stað þriggja í staðnámi auk þess sem kennt er með aðstoð myndfundabúnaðar og tölvusamskipta. Deildin áskilur sér rétt til að ákveða lágmarksfjölda þátttakenda á fyrsta námsári og í námshópi á hverjum fjarenda.


