Háskólinn á Akureyri

{{sxs parseStefTag(231,232,0)}}

Skipulag fjarnáms

Nám til B.Ed. náms í leikskólakennarafræði er 180 ECTS eininga nám. Fjarnám til B.Ed. prófs í leikskólakennarafræði tekur fjögur ár. Skipulag námsins er þrískipt. Í deildarkjarna eru námskeið sem eru sameiginleg fyrir nemendur á leik- og grunnskólabraut. Í leikskólakjarna eru námskeið sem allir leikskólakennaranemar taka. Í fjarnámi er boðið upp almennt svið en möguleiki er á vali um listasvið ef tíu eða fleiri nemendur velja það.
Kennsla fer fram um myndfundabúnað, í vefkennslukerfinu Blackboard, á heimasíðum og í námslotum. Nemendur koma til Akureyrar í skilgreindar námslotur.

Hvenær er kennt?
Kennt er að mestu á dagvinnutíma samkvæmt stundaskrá, en skv. ákvörðun kennara þegar um sérskipulögð verkefni í vefkennslukerfinu Blackboard er að ræða. Stundaskrá og dagsetningar á námslotum eru breytilegar eftir misserum.

Hópastærðir
Deildin áskilur sér rétt til að ákveða lágmarksfjölda í námshóp á hverjum fjarenda. Ekki er hægt að segja til um hvar námið verður í boði fyrr en umsóknir liggja fyrir.


Upplýsingar

Nánari upplýsingar um nám í leikskólakennarafræði veita Torfhildur S. Þorgeirsdóttir skrifstofustjóri kennaradeildar og Ingibjörg Smáradóttir fulltrúi í síma 4608042 og 4608041, netfang: kennaradeild@unak.is, og Finnur Friðriksson brautarstjóri í síma 460 8575, netfang: finnurf@unak.is.


Blar Gulur Hvitur
A A A
Vigdís Ósk Sveinsdóttir

„Lotukennsla, símat, toppkennarar og persónulegt umhverfi er ţađ sem lögfrćđikennslan viđ HA býđur upp á.“

Vigdís Ósk Sveinsdóttir hdl. hjá Lögmönnum Höfđabakka
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf