Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist þekkingu á undirstöðum lögfræðinnar með áherslu á lagaframkvæmd á Íslandi, í Evrópu og víðar. Nemendur læra að fjalla með gagnrýnum hætti um lögfræðileg málefni. Þeir þjálfast í að setja fram og skilgreina lögfræðileg álitamál og öðlast færni í faglegri og fræðilegri framsetningu lögfræðilegra viðfangsefna, bæði munnlega og skriflega, jafnt á íslensku sem ensku.
Kostir B.A.-námsins
B.A.-námið er traustur grunnur fyrir framhaldsnám í lögfræði, svo sem M.L.- og LL.M.-nám við Háskólann á Akureyri. Námið nýtist einnig vel sem fræðileg undirstaða fyrir framhaldsnám í öðrum greinum eins og alþjóðasamskiptum, alþjóðastjórnmálum og skyldum greinum.
Lotukennsla
Námskeiðin í B.A.-náminu eru kennd á íslensku eða ensku af föstum kennurum deildarinnar eða gestakennurum, erlendum og innlendum. Kennararnir eru sérfræðingar hver á sínu sviði. Námskeiðin eru í þriggja vikna lotum sem þýðir að nemandi situr aðeins eitt námskeið á hverjum tíma. Svipað fyrirkomulag er í námi í heimskautarétti (LL.M.) en kennslan þar fer öll fram á ensku. Í M.L.-náminu fer kennslan að mestu fram á íslensku og skipulag námsins er með hefðbundnum hætti.
Símat
Námsmat í B.A.- og LL.M.-náminu byggir á símati sem þýðir að námskeiðum lýkur ekki með einu lokaprófi heldur eru verkefni, ritgerðir og hlutapróf lögð fyrir jafnt og þétt. Það krefst jafnrar ástundunar og gerir nemendum kleift að fylgjast vel með eigin árangri.
Kennarar
Kennarar við lagadeildina eru auk fastra kennara við Háskólann á Akureyri úr röðum virtra fræðimanna,
lögmanna, dómara og annarra starfandi lögfræðinga, íslenskra sem erlendra.
|
„Lotukennsla, símat, toppkennarar, persónulegt umhverfi og svo miklu meira er það sem lögfræðikennslan við Háskólann á Akureyri býður upp á.“ Vigdís Ósk Sveinsdóttir |
![]() |



