Fræðasviðsfundur
Fræðasviðsfundur er að jafnaði haldinn tvisvar á misseri og fer með æðsta vald í málefnum fræðasviðsins.
Á fræðasviðsfundi eiga sæti allir fastráðnir starfsmenn fræðasviðsins, þrír fulltrúar stundakennara og þrír
fulltrúar nemenda.
Deildaráð
Deildaráð kemur saman að jafnaði á þriggja vikna fresti. Það fer meðal annars með æðsta vald fræðasviðsins á
milli fræðasviðsfunda og málefni einstakra nemenda. Í deildaráði sitja forseti fræðasviðsins, staðgengill forseta, formenn
deilda, brautarstjórar, forstöðumaður miðstöðvar skólaþróunar, fulltrúi kennara og fulltrúi nemenda.
Deildarfundir
Deildarfundir eru að jafnaði haldnir einu sinni í mánuði. Á þeim er fjallað um dagleg málefni
viðkomandi deildar. Á deildarfundum eiga sæti formenn deilda, fastir kennarar og fulltrúi nemenda.
Náms- og matsnefndir deilda
Náms- og matsnefndir deilda sjá um að undirbúa breytingar á námskipan deilda og fjalla
um beiðnir nemenda um mat á námi. Á hug- og félagsvísindasviði fara fimm nefndir með þessi hlutverk:
- Náms- og matsnefnd í félagsvísindum (sálfræði, fjölmiðlafræði, félagsvísindi, meistaranám).
- Náms- og matsnefnd í hugvísindum (nútímafræði).
- Náms- og matsnefnd í lögfræði (BA-nám, ML-nám, framhaldsnám í heimskautarétti).
- Námsnefnd kennaradeildar (grunn- og framhaldsnám, sbr. reglur námsnefndar).
- Matsnefnd kennaradeildar (grunn- og framhaldsnám, sbr. reglur matsnefndar).
Erindi til stjórnsýslu fræðasviðsins
Erindi til stjórnsýslueininga fræðasviðsins skulu berast a.m.k. viku fyrir fund til skrifstofu fræðasviðsins, dagsett og undirrituð.


