Innan hug- og félagsvísindasviðs er boðið upp á margskonar framhaldsnám. Hér er stutt yfirlit yfir þær leiðir sem eru í boði í hverri deild og hægt að finna nánari upplýsingar um hverja þeirra.
Félagsvísindadeild
- Rannsóknatengt meistaranám til M.A.-prófs í félagsvísindum. Námið tekur tvö ár og er 120 eininga alþjóðlegt rannsóknatengt meistaranám, þar sem 90 einingar eru sjálft meistaraverkefnið, og 30 einingar í námskeiðum. Sjá nánar.
Kennaradeild
- Diplómunám (Dipl.Ed.) - Nemandi getur brautskráðst með 60 einingar eða haldið
áfram til 120 eininga meistaraprófs og lokið annað hvort meistaranámi í menntunarfræðum til M.Ed.-gráðu eða rannsóknartengdu
meistaranámi til M.A.-gráðu. Sjá nánar.
- Meistaranám til M.Ed.-gráðu. 120 eininga nám, ætlað þeim sem hafa lokið
bakkalárprófi eða sambærilegu námi og hafa starfsréttindi á sviði kennslu, þjálfunar og umönnunar. Markmið námsins er
að mennta fólk til starfa í menntakerfinu sem krefjast framhaldsmenntunar á sviði menntunarfræða ásamt því að auka hæfni
þess til að stunda frekara nám. Hámarksnámstími er fjögur ár. Sjá
nánar.
- Meistaranám til M.A.-gráðu. 120 eininga rannsóknatengt meistaranám, ætlað
þeim sem vilja efla starfshæfni sína og sérþekkingu á sviði menntavísinda og byggja upp sérhæfingu í rannsóknum í
menntavísindum. Sjá nánar.
- Framhaldsnám fyrir þá sem vilja afla sér kennsluréttinda. Nemendur þurfa ýmist að ljúka 60 eða 120 eininga námi. Námslengd veltur m.a. á fyrri menntun og kennslureynslu að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Sjá nánar.
Lagadeild
- Nám til M.L.-prófs í lögfræði tveggja ára nám
á meistarastigi í lögfræði sem leiðir til prófgráðunnar magister leges (M.L.). Sjá
nánar.
- Nám í heimskautarétti - Lagadeild býður upp á eftirfarandi námsleiðir í heimskautarétti: 120 eininga meistaranám sem lýkur með MA-gráðu; 90 eininga meistaranám sem lýkur með LL.M-gráðu (Legum Magister, meistari í lögum); 60 eininga diplómunám á meistarastigi, 60 eininga diplómunám á bakkalárstigi svo og einstök námskeið í heimskautarétti – en þeim lýkur með sérstöku vottorði. Sjá nánar.


