Almennt um kennaradeild Háskólans á Akureyri
Í kennaradeild er boðið upp á fimm ára kennaranám til M.Ed.-gráðu skv. lögum nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Fyrri hluti fimm ára kennaranáms er þriggja ára nám í kennarafræði til B.Ed.-gráðu, samtals 180 einingar. Síðari hluti námsins er tveggja ára 120 eininga meistaranám í kennarafræði sem lýkur með M.Ed.-gráðu (fyrsta innritun árið 2012). Að því loknu sækja nemendur um kennsluréttindi til mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Þá er í boði meistaranám í kennarafræði til kennsluréttinda skv. lögum nr. 87/2009 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framahaldsskóla. Sjá einnig reglugerðir nr. 241/2009 og 872/2009. Að námi loknu sækja nemendur um kennsluréttindi til mennta- og menningarmálaráðuneytis. Ekki verður tekið inn í nám til kennsluréttinda á bakkalárstigi að þessu sinni.
Boðið er upp á diplómunám, Dipl.Ed., eins árs 60 eininga nám, sem jafnframt er fyrra ár í meistaranámi, og tveggja ára nám til M.Ed.-gráðu í menntunarfræði fyrir þá sem hafa bakkalárpróf eða sambærilegt próf og starfsréttindi á sviði kennslu, þjálfunar og umönnunar. Auk þessa er hægt að stundað tveggja ára rannsóknartengt 120 eininga meistaranám í menntunarfræði til M.A.-gráðu.
Skrifstofa kennaradeildar netfang: kennaradeild@unak.is
Sólborg v/Norðurslóð
600 Akureyri
Afgreiðsla háskólans er á Sólborg og er opin kl. 8:00 - 16:00 alla virka daga.
Forseti hug- og félagsvísindasviðs:
Sigurður Kristinsson, sími: 460 8651, netfang: sigkr@unak.is
Deildarformaður:
Anna Þóra Baldursdóttir, lektor, sími: 460 8552, netfang: anna@unak.is
Brautarstjóri kennarabrautar:
Anna Elísa Hreiðarsdóttir, lektor, sími: 460 8555, netfang: annaelisa@unak.is
Brautarstjóri framhaldsbrautar:
Trausti Þorsteinsson, lektor, sími: 460 8560, netfang: trausti@unak.is
Formaður matsnefndar:
Halldóra Haraldsdóttir, dósent, sími: 460 8578, netfang hh@unak.is
Formaður námsnefndar:
María Steingrímsdóttir, lektor, sími: 460 8562, netfang: maria@unak.is
Forstöðumaður miðstöðvar skólaþróunar:
Birna María Svanbjörnsdóttir, lektor, sími: 460 8579, netfang: birnas@unak.is
Umsjónarmaður alþjóðasamskipta:
Markus Meckl, lektor, sími: 460 8655, netfang: markus@unak.is
Fulltrúi:
Torfhildur S. Þorgeirsdóttir, sími: 460 8042, netfang: torfhild@unak.is fax: 460 8999


