Háskólinn á Akureyri

Hlutverk Háskólans á Akureyri er ađ veita nemendum tćkifćri til menntunar í metnađarfullu og alţjóđlegu náms- og rannsóknarumhverfi. Háskólinn skapar frćđimönnum sínum umhverfi og ađstöđu til rannsókna og nýsköpunar sem stuđlar ađ vexti og framţróun íslensks samfélags og veitir inn í ţađ nýjum straumum. Háskólinn leggur áherslu á gagnvirk tengsl viđ atvinnulífiđ.

Kennaradeild

Almennt um kennaradeild Háskólans á AkureyriKennaradeild

Í kennaradeild er boðið upp á fimm ára kennaranám til M.Ed.-gráðu skv. lögum nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Fyrri hluti fimm ára kennaranáms er þriggja ára nám í kennarafræði til B.Ed.-gráðu, samtals 180 einingar. Síðari hluti námsins er tveggja ára 120 eininga meistaranám í kennarafræði sem lýkur með M.Ed.-gráðu (fyrsta innritun árið 2012). Að því loknu sækja nemendur um kennsluréttindi til mennta- og menningarmálaráðuneytis.

Þá er í boði meistaranám í kennarafræði til kennsluréttinda skv. lögum nr. 87/2009 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framahaldsskóla. Sjá einnig reglugerðir nr. 241/2009 og 872/2009. Að námi loknu sækja nemendur um kennsluréttindi til mennta- og menningarmálaráðuneytis. Ekki verður tekið inn í nám til kennsluréttinda á bakkalárstigi að þessu sinni.

Boðið er upp á diplómunám, Dipl.Ed., eins árs 60 eininga nám, sem jafnframt er fyrra ár í meistaranámi, og tveggja ára nám til M.Ed.-gráðu í menntunarfræði fyrir þá sem hafa bakkalárpróf eða sambærilegt próf og starfsréttindi á sviði kennslu, þjálfunar og umönnunar. Auk þessa er hægt að stundað tveggja ára rannsóknartengt 120 eininga meistaranám í menntunarfræði til M.A.-gráðu.



Skrifstofa kennaradeildar netfang: kennaradeild@unak.is
Sólborg v/Norðurslóð
600 Akureyri

Afgreiðsla háskólans er á Sólborg og er opin kl. 8:00 - 16:00 alla virka daga.

Forseti hug- og félagsvísindasviðs:
Sigurður Kristinsson, sími: 460 8651, netfang: sigkr@unak.is

Deildarformaður:
Anna Þóra Baldursdóttir, lektor, sími: 460 8552, netfang: anna@unak.is

Brautarstjóri kennarabrautar:
Anna Elísa Hreiðarsdóttir, lektor, sími: 460 8555, netfang: annaelisa@unak.is

Brautarstjóri framhaldsbrautar:
Trausti Þorsteinsson, lektor, sími: 460 8560, netfang: trausti@unak.is

Formaður matsnefndar:
Halldóra Haraldsdóttir, dósent, sími: 460 8578, netfang hh@unak.is

Formaður námsnefndar:
María Steingrímsdóttir, lektor, sími: 460 8562, netfang: maria@unak.is

Forstöðumaður miðstöðvar skólaþróunar:
Birna María Svanbjörnsdóttir, lektor, sími: 460 8579, netfang: birnas@unak.is

Umsjónarmaður alþjóðasamskipta:
Markus Meckl, lektor, sími: 460 8655, netfang: markus@unak.is

Fulltrúi:
Torfhildur S. Þorgeirsdóttir, sími: 460 8042, netfang: torfhild@unak.is  fax: 460 8999



Blar Gulur Hvitur
A A A
Steinunn Fjóla Birgisdóttir

„Ég er mjög ánćgđ međ veru mína í Háskólanum á Akureyri, ţađ er góđur andi í skólanum og félaglífiđ frábćrt.“

Steinunn Fjóla Birgisdóttir nemandi í iđjuţjálfun
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf