Háskólinn á Akureyri

{{sxs parseStefTag(234,235,0)}}Hægt er að skoða töflu sem sýnir skipulag námsins hér.Nánari

Skipulag fjarnáms

Fjarnám til B.Ed.-prófs í grunnskólakennarafræði tekur fjögur ár. Nánari upplýsingar um inntak námsins er að finna í náms- og kennsluskrá 2008.

Nám og kennsla
Kennsla fer fram um myndfundabúnað, í vefkennslukerfinu Blackboard, á heimasíðum og í námslotum. Nauðsynlegt er að nemendur komi til Akureyrar í skilgreindar námslotur.

Í fjarnámi er ekki boðið upp á val um kjörsvið.

Hvenær er kennt?
Kennt er að mestu á dagvinnutíma samkvæmt stundaskrá, en skv. ákvörðun kennara þegar um sérskipulögð verkefni í vefkennslukerfinu Blackboard er að ræða. Stundaskrá og dagsetningar á námslotum eru breytilegar eftir misserum.

Hópastærðir
Deildin áskilur sér rétt til að ákveða lágmarksfjölda í námshópi á hverjum fjarenda. Ekki er hægt að segja til um hvar námið verður í boði fyrr en umsóknir liggja fyrir.


Upplýsingar

Nánari upplýsingar um nám í grunnskólakennarafræði veita Torfhildur S. Þorgeirsdóttir skrifstofustjóri kennaradeildar, Ingibjörg Smáradóttir fulltrúi í síma 4608042 og 4608041, netfang: kennaradeild@unak.is, og Finnur Friðriksson brautarstjóri í síma 460 8575, netfang: finnurf@unak.is  


Hægt er að skoða töflu sem sýnir skipulag námsins hér.

Nánari upplýsingar um einstök námskeið er að finna í náms- og kennsluskrá.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Ómar Karlsson

„Háskólinn á Akureyri er ađgengilegur og vingjarnlegur skóli sem býđur upp á gott nám“

Ómar Karlsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf