Háskólinn á Akureyri

Reglur um starf námsnefndar kennaradeildar hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri Námsnefnd

Reglur um starf námsnefndar

Reglur um starf námsnefndar kennaradeildar hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri

Námsnefnd kennaradeildar starfar í umboði deildarfundar. Hún fjallar um nám innan deildarinnar, skipulag þess og inntak.

I.   Hlutverk og uppbygging

  1. Hlutverk námsnefndar er að ræða og gera tillögur til deildarfundar um námskrá, námsskipan og námsgreinar í deildinni.
  2. Í nefndinni sitja 2 fastir kennarar deildar. Þeir eru kosnir á deildarfundi í maí/júní til tveggja ára í senn en kjörtímabil nefndarinnar hefst í ágúst og skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar. Annar hvor brautarstjóri kennaradeildar situr í nefndinni og komi þeir sér saman um í hvorri nefndinni þeir sitja. Félag nemenda við deildina hefur rétt til að kjósa einn aðalfulltrúa í nefndina og einn varafulltrúa. Fulltrúi nemenda tekur fullan þátt í störfum nefndarinnar.

II.  Námskrá og námsframboð

  1. Námsnefnd gerir tillögu um námskrá deildar þar sem kveðið er á um markmið, inntak og meginviðfangsefni námsins.
  2. Námsnefnd fjallar um kennsluskrár deildar og þær breytingar sem lagt er til að gerðar séu á þeim og leggur tillögur sínar fyrir deildarfund. Námsnefnd skal hafa fullt samráð við umsjónarkennara námskeiða um allar breytingar.
  3. Námsnefnd skal fjalla um allt nýtt námsframboð deildar áður en það er lagt fyrir deildarfund.
  4. Námsnefnd getur haft frumkvæði að breytingum á námskrá og kennsluskrá og að nýju námsframboði.
  5. Allar tillögur námsnefndar skal leggja fyrir deildarfund.
  6. Starfsmaður skrifstofu kennaradeildar skráir ákvarðanir nefndarinnar í fundargerð.

III.   Endurskoðun

  1. Reglur þessar skulu endurskoðaðar fyrir upphaf skólaárs 2012–2013.

Reglur þessar taka gildi frá og með haustmisseri 2010.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Tinna Stefánsdóttir

„Sálfrćđi er krefjandi, spennandi og skemmtilegt fag sem opnar marga möguleika ađ námi loknu.“

Tinna Stefánsdóttir nemandi í sálfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf