Háskólinn á Akureyri

{{sxs parseStefTag(181,182,183,185,0)}}

Reglur kennaradeildar

Skil á verkefnum
Deildarfundur kennaradeildar hefur gert eftirfarandi samþykkt vegna verkefnaskila: „Kennarar skulu tilgreina öll verkefni sem nemendur eiga að leysa af hendi í kennsluáætlunum við upphaf hvers misseris í kjölfar samráðsfundar sem haldinn skal tímanlega fyrir upphaf viðkomandi misseris. Í kennsluáætlunum skal koma fram vægi verkefna til einkunnar, eindagi skila og upplýsingar um hvenær kennari gerir ráð fyrir að skila yfirförnum verkefnum til baka. Nemendum er skylt að skila öllum verkefnum sem tilgreind eru með þessum hætti í kennsluáætlunum.

Í námi sem skipulagt er sem 30 ECTS einingar á misseri lækka nemendur um 0,5 í verkefniseinkunn fyrir hvern byrjaðan virkan dag (miðað er við kl. 8:15 nema annað sé tekið fram) sem líður frá eindaga. Í námi sem er skipulagt sem minna en 30 ECTS einingar á misseri lækka nemendur um 0,5 fyrir hverja tvo byrjaða daga. (Þessi setning á við um nám á framhaldsbraut og fjarnám á grunnbrautum.) Frá þessum reglum má ekki veita undanþágu nema brýnar ástæður séu til og þá að höfðu samráði við viðkomandi brautarstjóra“.


Reglur um vettvangsnám á grunnskólabraut

Til að geta hafið nám í námskeiðinu VEN0155 Vettvangsnám þarf nemandinn að hafa lokið öllum námskeiðum fyrsta árs og a.m.k. 50 ECTS einingum af öðru ári, eins og námsárin eru skipulögð í kennsluskrá fyrir dagskóla, þar með talið GSK0253. Þessum árangri skal nemandinn hafa náð fyrir lok vormisserisins næsta áður en til vettvangsnáms kemur.
Þessar forkröfur merkja það að nemendur sem ætla í tilgreint vettvangsnám eiga ekki rétt á að fara í ágústpróf sama ár til þess að uppfylla nefndar kröfur.

Deildarfundur kennaradeildar hefur gert eftirfarandi samþykkt vegna vettvangsnáms á grunnskólabraut: „Vettvangsnám og æfingakennsla nema á þriðja ári á grunnskólabraut fer fram í grunnskólum á Norðurlandi. Ef nemi óskar eftir að fara út fyrir svæðið ber hann kostnað af ferðum sínum sjálfur. Það er vilji deildarinnar að greiða fyrir því að kennaranemar geti stundað vettvangsnám í fámennum skóla.“

Um endurtökurétt á vettvangsnámskeiðum gildir að nemandi sem ekki stenst lágmarkskröfur í vettvangsnámi (VEN0155) eða æfingakennslu (ÆFK0157) þarf að endurtaka viðkomandi námskeið. Einungis er hægt að endurtaka hvort námskeið einu sinni og skal það gert á nýjum vettvangi.


Reglur um vettvangsnám á leikskólabraut

Fyrir LSK1010 Vettvangsnám á leikskólabraut:
Til að geta hafið nám í námskeiðinu VEN0510 Vettvangsnám þarf nemandinn að hafa lokið öllum námskeiðum fyrsta árs og a.m.k. 50 ECTS einingum af öðru ári, eins og námsárin eru skipulögð í námskrá fyrir dagskóla, þar með talið VEN0555 Vettvangsnám og DST0153 Deildarstjórnun í leikskóla.

Nemandi sem ekki stenst lágmarkskröfur í vettvangsnámi VEN0555 og VEN0510 þarf að endurtaka viðkomandi námskeið. Einungis er hægt að endurtaka hvort námskeið einu sinni og skal það gert á nýjum vettvangi.


Valgreinar á grunnskólabraut

Nemendum á grunnskólabraut er heimilt að taka hvaða námskeið sem er innan kennaradeildar og fá þau metin sem valgreinar á kjörsviðum brautarinnar. Nemendur hafa auk þess tækifæri til að velja námskeið úr öðrum deildum HA með samþykki námsnefndar/brautarstjóra og fá þau samþykkt sem valgreinar. Þegar slíkir úrskurðir liggja fyrir hafa þeir sjálfkrafa fordæmisgildi uns annað verður ákveðið.


Blar Gulur Hvitur
A A A
Helga Sif Eiđsdóttir

„Viđskiptafrćđinámiđ í HA er krefjandi en jafnframt skemmtilegt og áhugavert. “

Helga Sif Eiđsdóttir viđskiptafrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf