Menntasýn: Uppeldi og fræðsla verða ekki aðskilin og eitt af grundvallargildum skólastarfs er að mennta nemendur sem eru þroskaðir, réttsýnir og ábyrgir einstaklingar. Þess vegna leggur kennaradeild HA áherslu á heimspeki menntunar í starfi sínu með það fyrir augum að mennta kennara sem geta lagt gagnrýnið og ígrundað mat á menntamál, ásamt því að hafa þekkingu, færni og viðhorf sem gera þeim kleift að takast á hendur þau uppeldishlutverk sem kennsla leggur þeim á herðar.
Nemendasýn: Skólar eru fyrir alla og þar skulu allir nemendur hafa jafngild tækifæri til að menntast. Þess vegna leggur kennaradeild HA áherslu á að kennaranám feli í sér þekkingu, færni og viðhorf sem gera kennurum kleift að uppfylla þarfir ólíkra einstaklinga og hlúa að alhliða menntun þeirra.
Kennarasýn: Kennarinn er haldreipi skólastarfs. Þess vegna er takmark kennaradeildar HA að mennta kennara til að verða samvirka, skapandi fagmenn sem hafa trausta þekkingu í undirstöðuþáttum kennarastarfsins og færni til að beita henni í starfi: Þekkingu á nemendum, námi þeirra og þroska, þekkingu á námssviðum, námsgreinum og námskrá skóla og þekkingu á kennslu og árangursríkri tilhögun hennar.
Skólasýn: Kennarar öðlast mikilvægan hluta af faglegum þroska sínum í starfi. Þess vegna leggur kennaradeild HA metnað sinn í að mennta kennara sem hafa þekkingu, færni og vilja til að veita forystu og axla ábyrgð við að efla skóla sem menntasamfélag þar sem allir geta þroskast í starfi, lært hver af öðrum og hver með öðrum.
Rannsóknarsýn: Rannsóknir eru lykilþáttur í skólastarfi. Þess vegna leggur kennaradeild HA megináherslu á að starfsmenn hennar séu virkir rannsakendur á fræðasviðum deildarinnar. Deildin leggur enn fremur metnað sinn í að mennta kennara sem hafa burði til að stunda framhaldsnám eða gerast rannsakendur á eigin starfsvettvangi með þroska og umbætur að leiðarljósi.


