Háskólinn á Akureyri

Námið er ætlað þeim sem hafa lokið bakkalárprófi eða sambærilegu námi og hafa

Meistaranám til M.Ed.-gráđu

Námið er ætlað þeim sem hafa lokið bakkalárprófi eða sambærilegu námi og hafa starfsréttindi á sviði kennslu, þjálfunar eða umönnunar. Markmið námsins er að mennta fólk til starfa í menntakerfinu sem krefjast framhaldsmenntunar á sviði menntunarfræði ásamt því að auka hæfni þess til að stunda frekara nám. Hámarksnámstími er fjögur ár. Um aðgang að doktorsnámi er vakin athygli á inntökuskilyrðum viðtökuskóla. Einnig er hægt að velja meistaranám til M.A.-gráðu.

Inntökuskilyrði í diplómu- og M.Ed.-nám eru bakkalárpróf eða sambærileg próf og starfsréttindi á sviði kennslu, þjálfunar og umönnunar. Í M.A. nám er inntökuskilyrði bakklárpróf eða sambærileg próf með að jafnaði fyrstu einkunn. Markmið námsins er að efla nemendur til þess að takast á við störf í menntakerfinu sem krefjast framhaldsmenntunar á sviði menntunarfræði ásamt því að auka hæfni þeirra til þess að stunda frekara nám. Við upphaf náms skráir nemandi sig á tilgreint áherslusvið eða í almennt nám.


Nemandi getur brautskráðst með 60 eininga Dipl.Ed. (um kennsluréttindi að afloknu diplómunámi, sjá reglugerð nr. 241/2009) eða haldið áfram til 120 eininga meistaraprófs og lokið annað hvort meistaranámi í menntunarfræði til M.Ed.-gráðu eða rannsóknartengdu meistaranámi til M.A.-gráðu. Diplómunám er sett saman úr námskeiðum áherslusviðs og valnámskeiðum. Nemandi sem hefur meistaranám skráir sig á tilgreint áherslusvið eða í almennt nám án slíkrar sérhæfingar.


Áherslusvið eru sett saman úr kjarnanámskeiðum (sem eru sameiginleg öllum áherslusviðum), skyldunámskeiðum áherslusviðs, lokaverkefni og valnámskeiðum. Lokaverkefni skal vera á því áherslusviði sem nemandinn er skráður á. Krafa er gerð um ákveðna tímasókn í námskeið. Kennsla fer fram í staðbundnum lotum, að jafnaði fjórum sinnum á misseri, en að öðru leyti með breytilegu fjarnámssniði.

„Háskólinn á Akureyri varð fyrir valinu vegna þess að þar fann ég nám sem ég hafði lengi haft áhuga á til að bæta þekkingu mína, þ.e. lestrarfræði. Mér finnst verulega gott að fara í staðarloturnar til Akureyrar því þá gefst mér tími til að einbeita mér að náminu og komast frá daglegu amstri.“

Elsa Þorfinna Dýrfjörð
grunnskólakennari og meistaranemi 

   



Meistaranám til M.Ed.-gráðu - 120 einingar.
Áherslusvið 30 ein:
Kjarni 20 ein:
Valnámskeið:
Lokaverkefni:
-Almennt svið

-Námskrár- og kennslufræði

-Lestrarfræði

-Sérkennslufræði

-Stjórnun í skólastofnunum

Námskeið á almennu sviði eru valkvæm en bundið val er á öðrum áherslusviðum.
Eigindlegar eða  megindlegar  rannsóknaraðferðir.

Álitamál í skólastarfi eða Kenningar og rannsóknir í menntunar­fræði.

Fjöldi eininga í vali fer eftir stærð loka verkefns.


Öll námskeið nema lokaverkefni eru einnig valnámskeið.

Fyrir utan námskeið í kjarna og á áherslusviðum eru í boði nokkur valnámskeið að auki.
 30 eða 40 ein.

Efni meistaraprófsritgerðar skal vera á áherslusviði.
Sjá ítarlega náms- og kennsluskrá
Blar Gulur Hvitur
A A A
Bergvin Fannar Gunnarsson

„Ég valdi Háskólann á Akureyri ađ miklu leyti vegna stađsetningar skólans.“

Bergvin Fannar Gunnarsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf