Háskólinn á Akureyri

{{sxs parseStefTag(186,187,188)}}

Skiptinám

Skiptidvöl nemenda erlendis og innanlands


Leik- og grunnskólabraut

Nemendur á leik- og grunnskólabraut geta dvalið erlendis eitt misseri við erlendan háskóla, að uppfylltum almennum skilyrðum alþjóðasviðs HA, og fengið það metið sem hluta af námi sínu við grunnskólabraut. Um skiptinám af þessu tagi gilda eftirfarandi takmarkanir af hálfu leik- og grunnskólabrauta:

  • Nemandi sem hyggur á skiptinám erlendis verður að hafa lokið öllum námskeiðum fyrsta námsárs með fullnægjandi hætti.
  • Einungis er hægt að taka 3. og 4. misseri að fullu (30 ECTS einingar) við erlendan háskóla.
  • Ekki er heimilt að taka fimmta misserið erlendis.
  • Sjötta misserið er unnt að taka að hluta við erlendan háskóla (20 ECTS einingar) en kjörsviðsritgerð verður að skrifa við kennaradeild HA (10 ECTS einingar).
  • Nemandinn þarf að skila staðfestingu á því námi sem hann stundaði erlendis ásamt vottorði frá skólanum til að hægt sé að skrá námið í einkunnakerfi HA. Náms- og matsnefnd metur á hvern hátt námið fellur inn í nám nemandans við HA.

Ferillinn í skiptinámsdvöl nemenda innanlands er sem hér segir:

  • Nemandinn kannar hvaða námskeið gætu staðið til boða í öðrum háskóla, t.d. Kennaraháskóla Íslands, sem gætu fallið inn í námið hjá sér, annaðhvort í stað skyldunámskeiða eða sem valnámskeið. Hann kannar sjálfur hjá viðkomandi háskóla hvort hann geti fengið að taka umrætt námskeið.
  • Að því búnu hefur nemandi samband við brautarstjóra sem leggur á það mat með nemandanum hvort námskeiðið henti honum og samþykkir beiðnina eða hafnar henni. Samþykki brautarstjóri beiðnina staðfestir hann við viðkomandi háskóla að nemandanum hafi verið heimilað að taka námskeiðið en nemandinn verður sjálfur að sjá um að skrá sig í námskeiðið í hinum háskólanum.
  • Loks sækir nemandinn um það til náms- og matsnefndar leikskóla- eða grunnskólabrautar að námskeiðið fái formlega viðurkenningu sem hluti af námsleið nemandans. Best er að gera þetta strax en í síðasta lagi við lok námskeiðsins áður en hægt er að skrá einkunn í námsferilinn við HA.
  • Nemandinn þarfa að skila staðfestingu á því á hvaða stigi viðkomandi námskeið eru kennd og skilar vottorði frá þeim skóla til að hægt sé að skrá námskeiðið í einkunnakerfi HA.

Framhaldsbraut

Ferillinn í skiptinámsdvöl nemenda erlendis er sem hér segir:

  • Nemandi sækir um til deildar eða brautar að taka misseri eða skólaár við erlendan háskóla.
  • Alþjóðasvið aðstoðar nemanda við að sækja um í skólanum og útvega upplýsingar um þau námskeið sem í boði eru.
  • Nemandi ber þau námskeið sem hann hyggst taka undir forsvarsmann brautar og ef hann er samþykkur vali nemandans og telur að innihald og kröfur jafngildi því námi sem nemandi stundar við deildina, þá undirritar hann svokallaðan „Learning Agreement“ samning sem nemandi og gestaskóli undirrita einnig.
  • Þannig skuldbindur skólinn sig til að meta viðkomandi námskeið til eininga við HA ef nemandi stenst kröfur gestaskóla í þeim námskeiðum.
  • Nemandinn þarf að skila staðfestingu á því á hvaða stigi viðkomandi námskeið eru kennd og skilar vottorði frá þeim skóla til að hægt sé að skrá námskeiðið í einkunnakerfi HA. Náms- og matsnefnd metur á hvern hátt námið fellur inn í nám nemandans, t.d. hvort hægt er að skrá námið sem sérstakt áherslu- eða kjörsvið.

Ferillinn í skiptinámsdvöl nemenda innanlands er sem hér segir:

  • Nemandinn kannar hvaða námskeið gætu staðið til boða í öðrum háskóla, t.d. Kennaraháskóla Íslands, sem gætu fallið inn í námið hjá sér, annaðhvort í stað skyldunámskeiða eða sem valnámskeið. Hann kannar sjálfur hjá viðkomandi háskóla hvort hann geti fengið að taka umrætt námskeið.
  • Að því búnu hefur nemandi samband við brautarstjóra framhaldsbrautar sem leggur á það mat með nemandanum hvort námskeiðið henti honum og samþykkir beiðnina eða hafnar henni. Samþykki brautarstjóri beiðnina staðfestir hann við viðkomandi háskóla að nemandanum hafi verið heimilað að taka námskeiðið en nemandinn verður sjálfur að sjá um að skrá sig í námskeiðið í hinum háskólanum.
  • Loks sækir nemandinn um það til náms- og matsnefndar framhaldsbrautar að námskeiðið fái formlega viðurkenningu sem hluti af námsleið nemandans í diplómu- eða meistaranáminu. Best er að gera þetta strax en í síðasta lagi við lok námskeiðsins áður en hægt er að skrá einkunn í námsferilinn við HA.
  • Nemandinn þarfa að skila staðfestingu á því á hvaða stigi viðkomandi námskeið eru kennd og skilar vottorði frá þeim skóla til að hægt sé að skrá námskeiðið í einkunnakerfi HA.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Jón Ingi Björnsson

„Ţverfagleiki náms viđ HA gerir manni kleift ađ sjá hlutina í nýju ljósi. Ég sé ekki eftir ţví ađ hafa valiđ HA. “

Jón Ingi Björnsson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf