Háskólinn á Akureyri

{{sxs parseStefTag(174,212,213,214,0)}}

Stjórnskipan deildar

Deildarfundur
Deildarfundur er að jafnaði haldinn fjórum sinnum á hverju skólaári og fer með æðsta vald í málefnum deildarinnar. Á deildarfundi eiga sæti allir fastráðnir starfsmenn deildarinnar, fulltrúi stundakennara og tveir fulltrúar nemenda.

Deildarráð
Deildarráð kemur að jafnaði saman tvisvar í mánuði. Það fer meðal annars með æðsta vald deildar á milli deildarfunda og málefni einstakra nemenda. Í deildarráði sitja deildarforseti, staðgengill deildarforseta, brautarstjórar, forstöðumaður skólaþróunarsviðs, fulltrúi kennara og tveir fulltrúar nemenda.


Brautarfundir grunnbrauta
Brautarfundir eru að jafnaði haldnir einu sinni í mánuði. Á þeim er fjallað um dagleg málefni viðkomandi brautar. Á brautarfundum eiga sæti brautarstjóri viðkomandi brautar, fastir kennarar brautarinnar, fulltrúi stundakennara og fulltrúi nemenda.

Náms- og matsnefnd grunnbrauta
Nefndin er skipuð þremur fulltrúum kennara, kjörnum á brautarfundi, og einum fulltrúa nemenda, þeim sama og situr brautarfundi. Hún sér um að undirbúa breytingar á námskipan á brautinni og fjallar um beiðnir um mat á námi, sbr. reglur um náms- og matsnefndir í kennaradeild. Hún heldur fundi eftir þörfum. Erindi til hennar skulu sett fram eftir reglum um náms- og matsnefndir.

Brautarfundir framhaldsbrautar
Brautarfundir eru að jafnaði haldnir einu sinni í mánuði. Á þeim er fjallað um dagleg málefni viðkomandi brautar. Á brautarfundum eiga sæti brautarstjóri viðkomandi brautar, fastir kennarar brautarinnar og tveir fulltrúar nemenda, annars vegar nemenda í kennslufræði til kennsluréttinda og hins vegar nemenda í diplómu- og meistaranámi.

Náms- og matsnefnd framhaldsbrautar
Nefndin er skipuð þremur fulltrúum kennara, kjörnum á brautarfundi, og tveimur fulltrúum nemenda, þeim sömu og sitja brautarfundi. Hún sér um að undirbúa breytingar á námskipan á brautinni og fjallar um beiðnir um mat á námi, sbr. reglur um náms- og matsnefndir í kennaradeild. Hún heldur fundi eftir þörfum. Erindi til hennar skulu sett fram eftir reglum um náms- og matsnefndir.

Erindi til stjórnsýslu deildarinnar
Erindi til stjórnsýslueininga deildarinnar skulu berast a.m.k. viku fyrir fund til skrifstofu deildarinnar eða til viðkomandi stjórnanda (deildarforseta, brautarstjóra, formanns náms- og matsnefndar), dagsett og undirrituð.


Blar Gulur Hvitur
A A A
Fjóla Ţorsteinsdóttir

„Persónulegt námsumhverfi er ţađ sem heillar mig mest viđ Háskólann á Akureyri.“

Fjóla Ţorsteinsdóttir viđskiptafrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf