B.Ed.-Nám í kennarafræðum
(M.Ed.-Nám í kennarafræðum – frá 2012)
Fyrst var boðið upp á nám í kennarafræðum (á leik- og grunnskólastigi) við Háskólann á Akureyri árið 1993. Það stendur því á traustum grunni um leið og það er í stöðugri þróun. Nám til B.Ed.-gráðu er þriggja ára fullt nám í fjarnámi. Í beinu framhaldi af því geta nemendur síðan skráð sig í nám til M.Ed.-gráðu sem er forsenda kennsluréttinda. Það nám tekur tvö ár í fullu námi í fjarnámi og verður í boði frá og með haustinu 2012.
Áherslur í námi í kennarafræðum
Leiðarstef náms í kennaradeild hug- félagsvísindasviðs HA er gagnrýnin hugsun og ígrundað starf. Markmið deildarinnar er að mennta
kennara sem hafa trausta þekkingu á undirstöðuþáttum kennarastarfsins og geta tekist á hendur þau uppeldishlutverk sem kennsla leggur þeim
á herðar um leið og þeir eru færir um að þróa og móta skóla sem menntasamfélag í síkviku umhverfi. Áhersla er
lögð á verklega þjálfun með vettvangsnámi.
Nám og kennsla
Kennsla fer ýmist fram í staðbundnum námslotum á Akureyri eða um myndfundabúnað. Þess utan er námið vefstutt fjarnám þar
sem nemendur nýta sér heimasíður og rafræn kennslukerfi. Gera má ráð fyrir að mætingaskylda sé í ákveðnum
námskeiðum.
Hvenær er kennt?
Kennsla um myndfundabúnað fer að mestu fram á dagvinnutíma samkvæmt
stundaskrá, en samkvæmt ákvörðun kennara þegar um verkefni í rafrænu kennslukerfi er að ræða. Gera má ráð fyrir að
hvert misseri hefjist með námslotu á Akureyri en nákvæm tímasetning annarra lotna verður auglýst sérstaklega. Tímasetningin er breytileg
eftir misserum.
Hópstærðir
Ekki er gerð krafa um tiltekinn fjölda nemenda á hverjum stað, en það er kostur fyrir nemendur ef þeir geta stundað námið saman og notið
aðstöðunnar hjá þeim fræðslu- og símenntunarmiðstöðum sem eru í samstarfi við HA.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar um fjarnám í kennarafræðum veita Torfhildur S. Þorgeirsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu kennaradeildar(í
leyfi til 1. ágúst 2011), og Ingibjörg Smáradóttir fulltrúi, sími 460 8041, netfang ingibs@unak.is.
Einnig má senda fyrirspurnir á kennaradeild@unak.is.
|
„Fjarnám er góður kostur fyrir mig þar sem ég get stundað námið í heimabyggð samhliða starfi. Þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýnni hugsun einkenna fjölbreytt námskeið og mikil áhersla er lögð á ígrundun og samvinnu. Aðgengi að kennurum er gott og samskipti um myndfundabúnað gera kennsluna persónulega og líflega þó um fjarnám sé að ræða.“ Jóhanna Þorvaldsdóttir |
![]() |
B.Ed.-nám í kennarafræðum
Nám | Gráða | Einingar |
Kennarafræði | B.Ed | 180 ECTS |
Kennarafræði | M.Ed.* | 120 ECTS |



