Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um skráningar í námskeið og próf Heimasvæði nemenda í upplýsingakerfinu

Skráningar

Upplýsingar um skráningar í námskeið og próf

Heimasvæði nemenda í upplýsingakerfinu Stefaníu
Nemendur geta fylgst með námskeiðsvali sínu í á eigin heimasvæði í upplýsingakerfi háskólans Stefaníu. Til þess að komast inn á eigið heimasvæði þurfa nemendur að velja hnappinn innskráning á vef háskólans unak.is og slá inn kennitölu sína og skólanúmer.

Á heimasvæði nemenda er m.a. að finna stundaskrá, bókalista, próftöflu, upplýsingar um þau námskeið sem viðkomandi er skráður í hverju sinni, námsferil og einkunnir, auk upplýsinga um þann fjölda eininga sem sendur hefur verið til LÍN. Telji nemandi að upplýsingar séu ranglega skráðar, eða að gera þurfi breytingar á heimilisfangi, símanúmeri o.s.frv. ber að tilkynna það til afgreiðslu háskólans eins fljótt og auðið er.

Skráning í og úr námskeiðum
Skráning í og úr námskeiðum fer fram á heimasvæði nemenda í upplýsingakerfinu Stefaníu. Allir nýnemar eru sjálfkrafa skráðir í öll námskeið fyrsta misseris á viðkomandi námsbraut. Nánari upplýsingar um skráningardaga eru birtar í almanaki háskólans. Athuga skal að skráning úr námskeiði í Moodle jafngildir ekki formlegri skráningu úr námskeiðinu.

Staðfesting á skráningu í námskeið
Á fyrstu vikum hvors misseris þurfa nemendur að staðfesta skráningu í námskeið, jafnframt gefst nemendum tækifæri til að gera breytingar á fyrri skráningum. Val á námskeiðum er staðfest með rafrænum hætti á heimasvæði nemenda. Staðfestingin jafngildir skráningu í próf í viðkomandi námskeiði. Staðfesti nemandi ekki skráningu í námskeið telst hann vera hættur námi í viðkomandi námskeiði og er þá skráður úr námskeiðinu og tekinn af lista yfir þá nemendur sem skráðir eru til prófs. Staðfesting skráninga í námskeið haustmisseris 2011 fer fram dagana 5. - 18. september 2011. Þann 20. janúar 2012 eiga nemendur að hafa staðfest skráningar í námskeið vormisseris 2012.

Skráning í og úr prófum
Skráning í próf í námskeiðum sem nemandinn er ekki þegar skráður í fer fram á eyðublöðum sem fást á þjónustuborði háskólans. Þeir nemendur sem hyggjast skrá sig úr prófi í námskeiði sem þeir eru þegar skráðir í nota sama eyðublað. Til þess að slík skráning sé tekin gild þarf hún að vera undirrituð. Á umsóknareyðublaðinu skal tilgreina nafn, kennitölu, námskeiðsnúmer, námskeiðsheiti og misseri. Vanræki nemandi að skrá sig úr prófi sem hann hyggst ekki þreyta jafngildir það falli á prófinu. Þann 6. nóvember 2011 lýkur skráningu í og úr prófum haustmisseris 2011 og þann 30. mars 2011 lýkur skráningu í og úr prófum vormisseris 2011.

Sjúkra- og endurtökupróf
Sjúkra- og endurtökupróf eru haldinn í byrjun janúar í námskeiðum haustmisseris og í lok maí í námskeiðum vormisseris. Skráning í sjúkra- og endurtökupróf fer fram á heimasvæði nemenda í upplýsingakerfinu Stefaníu. Skráning er ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist sbr. hér neðar.

Veikindi á prófdegi
Veikindi á prófdegi ber að tilkynna samdægurs í afgreiðslu á Sólborg og staðfesta með læknisvottorði innan fimm daga. Sé nemandi veikur í prófi er hann ekki sjálfkrafa skráður í sjúkrapróf og ber sjálfur ábyrgð á því að skrá sig í sjúkrapróf. Ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur nemenda varðandi framkvæmd prófa er að finna í námsmatsreglum HA á vef háskólans.

Próftökugjöld
Nemendur greiða kr. 6.000  í próftökugjald fyrir öll endurtökupróf sem haldin eru í janúar og júní.
Greiðsla fer fram við skráningu í próf. Hægt er að greiða próftökugjald inn á reikning háskólans: 162-26-6610, kt. 520687-1229.
Ekki þarf að greiða fyrir sjúkrapróf svo framarlega sem nemandi hafi skilað inn vottorði vegna þess prófs.

Vottorð
Hægt er að fá útgefin vottorð um skólavist og námsferil í afgreiðslu háskólans. Nemendur greiða kr. 300 fyrir hvert eintak. Nemendur geta einnig prentað út námsferil sinn með nafni og kennitölu af heimasvæði sínu á vefsíðu Stefaníu.

Nemendur með sérþarfir
Nemendur sem eiga við fötlun að stríða eða hafa sérþarfir sem eru þeim á einhvern hátt hindrun í námi er bent á að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Solveigu Hrafnsdóttur (radgjof@unak.is) til að fá upplýsingar um þá aðstoð sem þeim býðst.

Brautskráning
Háskólinn á Akureyri brautskráir kandídata þann 9. júní 2012. Þeir nemendur sem hyggjast útskrifast þá, þurfa að skrá sig til útskriftar hjá skrifstofu fræðasviðs eigi síðar en 29. janúar 2012. Hætti nemandi við að brautskrást þarf hann að tilkynna það skriflega til skrifstofu fræðasviðs eigi síðar en 18. mars 2012.
Þeir nemendur sem standa í skuld við Háskólann á Akureyri og stofnanir hans geta ekki skráð sig til útskriftar.

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Stefán B. Sigurđsson

„Háskólinn á Akureyri veitir nemendum sínum einstakt tćkifćri til ađ taka virkan ţátt í nýsköpun ţekkingar á fjölmörgum sviđum. “

Stefán B. Sigurđsson rektor
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf