Grundvallaratriði
Háskóli er samfélag frjálsrar þekkingarleitar. Svo að það þjóni tilgangi sínum verða meðlimir þess að sýna
hver öðrum kurteisi og virðingu.
Þessi gildi samrýmast akademísku frelsi og eru raunar forsendur þess. Nemendur njóta akademísks frelsis til að velja námsgrein, setja fram
skoðun sína og komast að eigin niðurstöðum. Nemendur geta verið ósammála kennurum sínum og mega gagnrýna viðhorf þeirra og
kennsluaðferðir. Slíkan ágreining ber þó ávallt að ræða á kurteislegan hátt.
Markmið hvers námskeiðs í háskóla er skipulagður lærdómur. Meðlimir námskeiðsins mynda fyrir sitt leyti samfélag sem
hlúir að þekkingu og jákvæðum samskiptum.
Reglur
Ætlast er til að kennarar veiti stúdentum upplýsingar um lesefni, verkefni og námsmat í upphafi hvers námskeiðs. Ef um
mætingarskyldu er að ræða skal geta þess í námskeiðsáætlun. Kennarar reyna að komast hjá því að breyta
námskeiðsáætlun eftir að námskeið er hafið. Ef breytingar eru nauðsynlegar ber að kynna þær tímanlega og útskýra
ástæður þeirra fyrir stúdentum.
Kennarar leitast af fremsta megni við að gera skipulag og kröfur í námskeiðum sínum eins skýrt og mögulegt er. Í
námskeiðsáætlun skal kveða skýrt á um lengd, vægi, tegund og skipulag hvers námsmatsþáttar, og sömuleiðis skal gera
nemendum það ljóst með góðum fyrirvara hvaða námsefni er metið hverju sinni.
Kennarar leggja sig fram um að tryggja að allar bækur og önnur námsgögn séu aðgengileg stúdentum vel áður en námskeið
hefst.
Kennurum og rannsakendum er algerlega óheimilt að stunda óheiðarlegar rannsóknir; óheiðarlegar rannsóknir eru m.a. ritstuldur og fölsun gagna
eða staðreynda í fræðilegum verkum.
Hvers kyns áreitni og mismunun er bönnuð og verður ekki liðin, hvort sem hún beinist gegn stúdentum, kennurum, eða öðru starfsfólki og hvort
sem hún byggist á kynferði, kynþætti, kynhneigð, aldri, fötlun, þjóðerni, trúarbrögðum, skoðunum, eða
öðru.
Kennarar gæta trúnaðar um persónuleg málefni stúdenta og kollega.
Almennt er ætlast til þess að kennarar breyti þannig að þeir séu háskólasamfélaginu til sóma.
Kvartanir
Umkvörtunum stúdenta í tengslum við námskeið skal fyrst beint til umsjónarkennara námskeiðsins. Slíkar
umkvartanir skulu settar fram af virðingu og háttvísi á sama hátt og kennarar skulu sýna stúdentum virðingu og háttvísi; til
dæmis með því að forðast háreysti og óthilhlýðilegt orðbragð. Ef umsjónarkennari getur ekki leyst úr málum
á viðunandi hátt er stúdent heimilt að bera kvörtunina undir stjórnanda viðkomandi námsbrautar eða deildarforseta.
Umkvartanir stúdenta sem ekki tengjast einstöku námskeiði eða sem af einhverjum ástæðum er ekki unnt að bera undir umsjónarkennara
námskeiðs skulu í trúnaði bornar upp við deildarforseta.
Stúdent sem telur sig hafa orðið fyrir áreitni eða mismunun mega í trúnaði tjá sig við hvaða kennara sem er og treysta því
að málinu verði fylgt eftir á viðeigandi hátt, í samráði við stúdentinn.
Sjá einnig Siðareglur Háskólans á Akureyri


