Háskólinn á Akureyri

Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri GrundvallaratriðiHáskóli er samfélag

Reglur um ábyrgđ nemenda

Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri

Grundvallaratriði
Háskóli er samfélag frjálsrar þekkingarleitar. Svo að það þjóni tilgangi sínum verða meðlimir þess að sýna hver öðrum kurteisi og virðingu.
Þessi gildi samrýmast akademísku frelsi og eru raunar forsendur þess. Nemendur njóta akademísks frelsis til að velja námsgrein, setja fram skoðun sína og komast að eigin niðurstöðum. Nemendur geta verið ósammála kennurum sínum og mega gagnrýna viðhorf þeirra og kennsluaðferðir. Slíkan ágreining ber þó ávallt að ræða á kurteislegan hátt.
Markmið hvers námskeiðs í háskóla er skipulagður lærdómur. Meðlimir námskeiðsins mynda fyrir sitt leyti samfélag sem hlúir að þekkingu og jákvæðum samskiptum.

Reglur
Heiðarleiki í námi
Óheiðarleiki í námi er algjörlega bannaður. Hann getur meðal annars birst í eftirfarandi:

  • Svindl á prófum, þar á meðal notkun heimilda eða gagna sem kennari hefur ekki leyft.
  • Ritstuldur, þ.e. framsetning hugverka annarra líkt og þau væru manns eigin. Kennari eða lesandi á alltaf að geta vitað hvort hugmyndir og framsetningarmáti í verki nemanda kemur frá honum sjálfum eða annars staðar frá, og þá hvaðan. Í ritverkum eru þessar upplýsingar veittar með notkun tilvísana, heimildaskrár og vísbendinga í texta. Ef engrar heimildar er getið er gert ráð fyrir að nemandinn setji efnið fram sem eigið verk.
  • Rangfærslur ástæðna þegar beðið er um undanþágu frá skilafresti eða mætingarskyldu (þar með talið fölsun viðvistarskrár).

Almennt er ætlast til þess að nemendur breyti þannig að þeir séu háskólasamfélaginu til sóma.

Akademísk ábyrgð nemenda
Almennt er ætlast til þess að nemendur mæti í tíma, hvort sem þess er formlega krafist eða ekki. Kennari getur krafist mætingar formlega með því að gera mætingu að skilyrði fyrir að ljúka námskeiðinu eða með því að gera mætingu að sérstökum námsmatsþætti. Mætingarskylda getur fylgt heilu námskeiði eða námskeiðshluta, en nemandi sem mætir í minnst 80% þeirra tíma þar sem mætingar er krafist telst uppfylla mætingarskyldu.
Hvort sem mætingar er formlega krafist eða ekki ber nemandinn einn ábyrgð á afleiðingum fjarveru sinnar. Meðal slíkra afleiðinga eru að missa af efni sem dreift er í tíma, falla á mætingu og missa af upplýsingum sem prófað verður úr þrátt fyrir að þær komi hvergi fram í lesefni eða á glærum. Kennurum er ekki skylt að gera sérstakar ráðstafanir til að draga úr neikvæðum afleiðingum af fjarveru nemandans.
Eigi nemandi alls ekki kost á að mæta í tíma (hvort sem mætingar er formlega krafist) skal hann láta kennara vita um það fyrirfram (yfirleitt nægir að senda tölvupóst). Sé nemanda ókleift að sækja kennslustundir yfir umtalsvert tímabil (t.d. vegna veikinda, neyðarástands í fjölskyldu o.s.frv) skal hann leita samkomulags við kennara um fyrirkomulag og ráðstafanir.
Ætlast er til að nemendur mæti undirbúnir í tíma og hafi lesið skyldulesefnið fyrirfram.
Ætlast er til að í hópverkefnum leggi allir meðlimir sitt af mörkum. Ef misbrestur verður á þessu eru aðrir í hópnum hvattir til að láta kennara vita.
Ætlast er til að nemendur taki þátt í námskeiðamati háskólans.

Almenn háttvísi
Ætlast er til að nemendur forðist alla háttsemi sem vanvirðir, tekur ekki tillit til, eða truflar kennara eða aðra nemendur. Nánar tiltekið: 

  • Ætlast er til stundvísi.
  • Nemendur sem verða að ganga inn eða út úr kennslustofu á meðan kennslustund varir skulu gera það hljóðlega og þannig að sem minnst truflun hljótist af.
  • Í kennslustundum eru fartölvur einungis leyfðar sem tæki til þátttöku í kennslustundinni, t.d. til að glósa eða nálgast upplýsingar sem tengjast námsefninu. Í kennslustundum er því óheimilt að nota fartölvur til að spila tölvuleiki, lesa blöðin, vafra á netinu, spjalla á spjallrásum, lesa tölvupóst, o.s.frv.
  • Nemendur skulu ekki lesa blöðin eða annað sem ekki kemur námsefninu við á meðan kennslustund varir.
  • Notkun farsíma er með öllu óheimil á meðan kennslustund varir, þar með talið lestur og sending textaskilaboða. Nemendur skulu annaðhvort hafa slökkt á farsímum sínum eða hafa þá stillta á þögn á meðan kennslustund varir.
  • Nemandi sem telur líkur á áríðandi símtali á meðan kennslustund varir skal setjast nálægt útgangi og læðast þá út áður en hann svarar, ef símtalið berst.

Þessi listi er ekki tæmandi. Ætlast er til þess að nemendur séu meðvitaðir um eigin hegðun og sýni öðrum tillitssemi.

Bann við áreitni og mismunun
Hvers kyns áreitni og mismunun er bönnuð og verður ekki liðin, hvort sem hún beinist gegn nemendum, kennurum, eða öðru starfsfólki og hvort sem hún byggist á kynferði, kynþætti, kynhneigð, aldri, fötlun, þjóðerni, trúarbrögðum, skoðunum, eða öðru.

Sjá einnig Siðareglur Háskólans á Akureyri

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hákon Örn Hafţórsson

„HA veitir nemendum góđa ađstöđu til náms og mér líđur vel í bćđi áhugaverđu og krefjandi námi sem kennarafrćđin er.“

Hákon Örn Hafţórsson kennaranemi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf