Á þriðja námsári vinna nemendur í B.A.-námi verkefni um efni að eigin vali. Þeir skulu hafa skilað tillögu
að
viðfangsefni (á þar til gerðu eyðublaði) til skrifstofu deildarinnar fyrir lok fjórða misseris og eigi síðar en við
upphaf fimmta misseris. Almenna reglan er sú að verkefnið vinni nemendur einir, en þó má gera á því
undantekningar.
LOK0373 og LOK0473 - Lokaverkefni til B.A.-prófs í lögfræði 12 ECTS
MPR0173, MPR0273, MPR0373, MPR0473 og MPR0573 - Lokaverkefni til M.L. prófs í lögfræði 30 ECTS
Lögð er áhersla á að nemendur:
• Setji sér raunhæf markmið
• Afmarki verkefnið og velji vinnuaðferðir með tilliti til markmiðs
• Beiti gagnrýnu mati á heimildir og kenningar
• Geri skýran greinarmun á staðreynd og skoðun og halli hvergi réttu máli
• Kunni að beita rökum í framsetningu
• Hafi vald á skýrri framsetningu efnis og faglegum frágangi
UMSJÓN OG LEIÐBEININGAR
Umsjónarnefnd með lokaverkefnum heldur skrá yfir nemendur, leiðbeinendur þeirra og ritgerðarefni fyrir hönd
skólans. Umsjónarnefndin er skipuð deildarforseta og umsjónarmönnum B.A.- verkefna úr hverri
námsbraut deildarinnar, lögfræði, samfélags- og hagþróunarfræði,
þjóðfélagsfræði, fjölmiðlafræði, sálfræði og nútímafræði.
Forseti fræðasviðs er í forsæti umsjónarnefndarinnar.
Umsjónarmenn lokaverkefna á hverri námsbraut um sig úthluta nemendum leiðbeinanda og skulu
leiðbeinendur að jafnaði vera úr hópi fastra kennara deildarinnar á því sviði sem verkefni fjallar um. Telji
umsjónarmaður lokaverkefna þörf á að fá leiðbeinanda sem er sérfræðingur utan skólans, skal hann hafa um
það samráð við umsjónarnefnd og þurfa slíkir sérfræðingar að jafnaði að hafa fullgilt háskólapróf.
Leiðbeinandi og nemandi skrifa undir sérstakan samstarfssamning um verkefnið á þar til gerðu eyðublaði.
Leiðbeinandi tekur við þeim nemendum sem hann treystir sér til að hafa umsjón með. Hann fylgist með vinnu
þeirra og leiðbeinir um verktilhögun, fræðileg atriði, framsetningu og frágang.
Að höfðu samráði við umsjónarmann lokaverkefna viðkomandi námsbrautar getur leiðbeinandi vísað nemendum
til annars aðila um faglega ráðgjöf. Heimilt er að skipta leiðsögn milli leiðbeinanda og ráðgjafa samkvæmt
sérstökum reglum. Leiðbeinandi ber eftir sem áður ábyrgð á leiðsögn um fræðileg vinnubrögð og frágang
ritgerðar.
Vinnuáætlun
Nemendum ber að skila greinargóðri áætlun um uppbyggingu og efni lokaritgerðar til leiðbeinanda í samræmi
við skilafresti sem einstakar námsbrautir setja. Í áætluninni skal greina frá rannsóknaraðferðum, áformaðri
kaflaskiptingu og helstu viðfangsefnum. Leiðbeinandi þarf að samþykkja vinnuáætlun eða leggja til þær
breytingar sem honum sýnast nauðsynlegar áður en lengra er haldið.
Nemendur skulu haga vinnu sinni þannig að þeir geti afhent leiðbeinanda sínum lokauppkast verkefnis í síðasta
lagi tíu dögum áður en auglýstur skilafrestur deildarinnar rennur út.
Nemendur sem ekki ná að skila verkefni á tilsettum tíma eiga þess kost að afhenda leiðbeinanda sínum
lokauppkast til yfirlestrar síðar það vor eða sumar. Skiladagur á fullfrágengnum eintökum er síðasti dagur þess
skólaárs.
Lengd verkefnis
Lokaverkefni sem samið er af einum nemanda skal að hámarki vera 7,5 síða á hverja einingu sem lokaverkefnið
gildir, fyrir utan viðauka. Hver námsbraut um sig gefur að öðru leyti út æskileg lengdarviðmið.
Skil á verkefni
Nemendum í B.A.-námi ber að skila tveimur innbundnum eintökum á skrifstofu hug- og félagsvísindasviðs
fyrir tilskilinn skilafrest. Annað eintakið fer til varðveislu á bókasafni HA en hitt fer til leiðbeinanda. Nemendum í M.L.-námi ber að skila
þremur innbundnum eintökum á skrifstofu hug- og félagsvísindasviðs. Þá skila nemendur rafrænu eintaki til Skemmunnar - sjá
nánari upplýsingar á vef bókasafns HA.
Einkunnir og próf
Leiðbeinandi og prófdómari meta lokaverkefni og gildir meðaltal einkunna þeirra sem lokaeinkunn. Þegar tveir
nemendur standa að verkefni getur leiðbeinandi farið fram á við umsjónarnefnd lokaverkefna að hvor þeirra sé
prófaður munnlega til að sannreyna hluta þeirra í vinnunni og gefa hvorum sjálfstæða einkunn. Prófdómari er
skipaður af deildarforseta eftir tilnefningu umsjónarmanns B.A.-verkefna.
LEIÐBEININGAR UM FRÁGANG VERKEFNIS
Forsíða: Skóli, svið, deild, ár, síðan heiti verkefnis (stærra letur um miðja síðu), höfundur/-ar, lokaverkefni við Hug-
og félagsvísindasvið (neðst).
Næsta síða: Sama og forsíða nema í stað „lokaverkefni á Hug- og félagsvísindasviði“ standi
„lokaverkefni til 180
eininga B.A-prófs / 120 eininga M.L.-prófs við Hug- og félagsvísindasvið.“ Einnig komi fram nafn leiðbeinanda. Þessi síða er
ótölusett.
Síða ii: Yfirlýsingar: a) „Ég/við lýsi/lýsum því hér með yfir að ég/við einn/ein/einar/einir
er/erum höfundur/-ar
þessa verkefnis og að það er ágóði eigin rannsókna“ (undirskrift höfunda(r). b) „Það staðfestist hér með
að
lokaverkefni þetta fullnægir að mínum dómi kröfum til B.A.-prófs / M.L.-prófs við Hug- og félagsvísindasvið“ (undirskrift
leiðbeinanda).
Síða iii: a) Útdráttur á íslensku (um 300 orð). b) Útdráttur á ensku (um 300 orð). Hvort tveggja skal vera
með
minnsta línubili.
Síða iv: Þakkarorð höfundar og/eða persónuleg gullkorn (ekki nauðsynlegt).
Síða 1: Efnisyfirlit.
Síða 2: Kafli 1 hefst: Inngangur.
Meginmál: Kaflaskipting og númer undirkafla skulu vera í samræmi við reglur sem viðkomandi námsbraut
setur.
Heimildir: Skráið heimildir samkvæmt reglum sem viðkomandi námsbraut ákveður.
Tilvísanir: Tilvísanir skulu vera í samræmi við reglur sem notaðar eru í viðkomandi námsbraut.
Snið: Línubil skal ekki vera minna en 1,5. Að öðru leyti skal nota blaðsíðusnið sem líkast Normal Style í
forritinu Word. Letur skal vera 12 punkta, helst Times New Roman.
UMSJÓNARNEFND/UMSJÓNARMENN LOKAVERKEFNA
Hlutverk umsjónarnefndar/umsjónarmanna eru:
- Að halda skrá um leiðbeinendur, nemendur og ritgerðarefni.
- Að miðla upplýsingum til leiðbeinenda um námskröfur, skil og prófdæmingu.
- Að ákveða prófdómara í samráði við leiðbeinendur.
- Að sjá til þess að ritgerðir berist til prófdómara í tæka tíð.
- Að skera úr um vafaatriði, t.d. í sambandi við val á ritgerðarefni eða verkaskiptingu tveggja eða fleiri
leiðbeinenda. - Að vera nemendum og leiðbeinendum til ráðuneytis í vanda sem upp kann að koma í samskiptum þeirra
eða í sambandi við samningu verkefnisins. - Að halda utan um tillögur að viðfangsefnum og staðfesta samninga um verkefni.
LEIÐBEINENDUR
Hlutverk leiðbeinenda eru:
- Að hjálpa nemendum við að velja efni og afmarka það skynsamlega
- Að leiðbeina nemendum um rannsóknarspurningar, rannsóknaraðferðir, öflun heimilda og úrvinnslu þeirra.
- Að benda á þá aðila sem veitt gætu upplýsingar um efnið og leita samþykkis þeirra um að mega senda
nemendur á þeirra fund. - Að sjá um að nemendur geri raunhæfa vinnuáætlun og fylgjast með framvindu hennar. Æskilegt er að
kennari og nemendur komi sér saman um að hittast reglulega. - Að telja kjark í nemendur sem komnir eru í vandræði með ritgerðarefnið og leiðbeina þeim.
- Að lesa verkefnið a.m.k. einu sinni í handriti og leiðbeina um byggingu hennar, framsetningu, málfar og
frágang. - Að meta verkefnið og skila skriflegri umsögn í samvinnu við prófdómara.
- Að skila einkunn til umsjónarkennara lokaverkefna.
Skipt leiðsögn með ritgerð
Einn leiðbeinandi annast hvert verkefni. Í undantekningartilvikum geta tveir kennarar skipt með sér leiðsögn í
samráði við umsjónarmann. Leiðbeinandi getur vísað nemendum á sérfræðing í efni verkefnisins sem veitt
getur meiri upplýsingar um efnið en hann sjálfur.
Í samráði við umsjónarmenn lokaverkefna geta leiðbeinendur samið um að skipta með sér verkum við
leiðsögnina á eftirfarandi hátt: Hinn eiginlegi leiðbeinandi með verkefninu leiðbeinir um afmörkun viðfangsefnis
og rannsóknaraðferðir. Hann fylgist með samningu verkefnisins, les það í handriti og leiðbeinir um byggingu,
framsetningu, málfar og frágang. Hann metur verkefnið og skilar skriflegri umsögn í samvinnu við prófdómara.
Sérfræðingur á sviði verkefnisins leiðbeinir nemendum fyrst og fremst um rannsóknarspurningar og
rannsóknaraðferðir, öflun heimilda og úrvinnslu þeirra. Hann fylgist að einhverju leyti með vinnuáætlun
nemenda og leiðbeinir ef með þarf. Hann er hins vegar ekki skuldbundinn til að lesa verkefnið eða gera
athugasemdir við hana.
Sé um skipta leiðsögn að ræða skal leiðbeinandi hljóta 2/3 en sérfræðingur 1/3 af heildargreiðslu fyrir
viðkomandi ritgerð.
(Samþykkt á deildarfundi 23. sept. 2005)


