Reglur hug- og félagsvísindasviðs um símat
1. gr.
Almennt um símat og símatsreglur.
Reglur hug- og félagsvísindasviðs um símat eiga að stuðla að samræmi innan fræðasviðsins við notkun símats, að
því sé beitt á sanngjarnan og gagnsæjan hátt og það ekki misnotað. Símat felur í sér leiðsagnarmat og er ætlað
að gera nemendum kleift að fylgjast með eigin námsárangri og bæta það sem bæta þarf.
Reglur þessar eru settar til fyllingar Reglum um námsmat fyrir Háskólann á Akureyri nr. 885/2009.
2. gr.
Tilskilin lágmarkseinkunn fyrir námsmatsþátt.
Kennara er óheimilt að tilskilja lágmarkseinkunn fyrir símatsþætti sem vega minna en 10% af lokaeinkunn.
Með orðinu lágmarkseinkunn er alltaf átt við 47,5% af hámarkseinkunn, sbr. gr. 7d) í námsmatsreglum.
Nemandi sem ekki nær tilskilinni lágmarkseinkunn fyrir námsmatsþátt fær þá einkunn skráða sem lokaeinkunn í
námskeiðinu, eða hæstu falleinkunnina hafi hann fallið á fleiri en einum slíkum þætti.
3. gr.
Endurtaka.
Boðið skal upp á endurtöku námsmatsþátta fyrir þá nemendur sem féllu eða voru veikir þegar námsmat fór fram,
enda séu veikindin staðfest með læknisvottorði.
Í símatsþáttum sem gilda 10-29% af lokaeinkunn fer endurtekning fram á námskeiðstímanum. Endurtakan skal fara fram í sjúkra- og
endurtökuprófatíð misserisins ef hún gildir a.m.k. 30% af lokaeinkunn, sbr. gr. 5 í námsmatsreglum. Þetta gildir hvort sem um er að
ræða próf eða verkefni. Sé um að ræða endurtekin verkefnaskil skal umsjónarkennari leggja fyrir nýtt verkefni. Skiladagur er síðasti
dagur sjúkra- og endurtekningaprófa.
Endurtaka námsmatsþáttar má vera á öðru formi en upprunalegt námsmat, t.d. má endurtaka verkefni með prófi; það er
á valdi kennara. Heimilt er að slá saman endurtöku námsmatsþátta með allt að 100% prófi. Hvern námsmatsþátt má
þó aðeins endurtaka einu sinni.
Umsjónarkennari tilkynnir áætluð skil kennara í kennsluáætlun. Skil kennara skulu að jafnaði vera í samræmi við skilaskyldu
í námsmatsreglum.
4. gr.
Sérstakar aðstæður.
Kennara er heimilt að gefa nemanda leyfi til að skila verkefni eftir settan skiladag. Kennara ber að athuga gaumgæfilega að um sé að ræða brýnar
persónulegar ástæður.
Nemandi sem mætir ekki í próf (skriflegt eða munnlegt), og hefur ekki læknisvottorð hlýtur einkunnina 0.
Nemandi sem skilar ekki verkefni á tilsettum tíma fær lægri einkunn sem nemur 0,5 fyrir hvern virkan dag sem líður fram yfir skiladag.
5. gr.
Heimapróf
Umsjónarkennurum námskeiða sem nota heimapróf ber að setja skýrar reglur um framkvæmd prófsins, svo sem um leyfileg hjálpargögn, samvinnu nemenda við úrlausn prófsins og tímamörk. Nemandi sem ekki skilar heimaprófi á tilsettum tíma fær einkunnina 0.
6. gr.
Þátttaka í kennslustundum.
Umsjónarkennara er heimilt að ákveða að meta þátttöku nemenda í kennslustundum til einkunnar, þó aldrei meira en 15% af námskeiðseinkunn
7. gr.
Gildistaka.
Reglurnar taka gildi 1. ágúst 2010. Jafnframt falla þá úr gildi Reglur félagsvísinda- og lagadeildar um símat.
Þannig samþykkt á deildafundi hug- og félagsvísindasviðs 26. maí 2010.


