Það tímabil sem nemandi hefur til að skrá sig í útskrift í júní er frá janúar til mars. Sú skráning er rafræn á innrivef háskólans. Það er mikilvægt að nemendur skoði hvort þeir standist allar þær kröfur sem gerðar eru til útskriftar áður en þeir skrá sig. Útskriftarathöfn er haldin hátíðleg í júní á hverju ári.
Við
brautskráingu hljóta nemendur útskriftarskírteini, tvö afrit af námsferli viðkomandi (á íslensku og ensku) auk
skírteinisviðauka (Diploma Suplement). Skírteinisviðaukinn er gefinn út á íslensku og útbreiddu evrópsku máli (Ensku), og er
afhent endurgjaldslaust til allra nemenda við brautskráningu. Skírteinisviðaukinn er lýsing á því námi sem nemandinn hefur lokið
auk stuttrar lýsingar á íslenska menntakerfinu og uppbyggingu þess. Almennt eru nemendur beðnir um að skila inn skírteinisviðauka þegar sótt
er um skólavist hjá erlendum háskólum.
Smelltu hér til að skoða sýnishorn af
skírteinisviðauka á ensku
Háskólinn á Akureyri fékk nýlega Diploma Supplement vottun (DS Label) en það þýðir
að skírteinisviðaukinn sem stúdentar háskólans fá við brautskráningu er skv. fyrirmælum framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins (European Commisson). Viðaukanum er ætlað að veita hlutlægar upplýsingar um námið í HA, bæta
alþjóðlegt „gegnsæi" og stuðla þannig að viðurkenningu náms frá HA hjá menntastofnunum alþjóðlega og á
vinnumarkaði.
Það er viðurkenning fyrir háskólann að fá þessa vottun (DS Label) en formleg afhending hennar fer fram í Kaupmannahöfn 8. maí 2012 í tilefni af 25 ára afmæli ERASMUS áætlunarinnar.
Nánari upplýsingar um Diploma Supplement má finna hér.


