Haustið 2011 býður Háskólinn á Akureyri væntanlegum nemendum að innrita sig í
fjarnám í eftirfarandi greinum:Heilbrigðisvísindasvið:
- Hjúkrunarfræði (í boði á Selfossi)
- Iðjuþjálfunarfræði
Hug- og félagsvísindasvið:
- Félagsvísindi B.A.
- Fjölmiðlafræði B.A.
- Kennarafræði B.Ed.
- Kennarafræði M.Ed. (hefst haustið 2012)
- Nútímafræði B.A.
- Sálfræði B.A.
Viðskipta- og raunvísindasvið:
- Líftækni B.S.
- Náttúru- og auðlindafræði Diplóma - í samstarfi við Háskólann á Hólum
- Sjávarútvegsfræði B.S.
- Viðskiptafræði B.S. með áherslu á stjórnun og fjármál eða stjórnun og markaðsfræði
Umsóknarfrestur er til 5. júní 2011.
Tilhögun fjarnáms
Kennsla og rauntímasamskipti fara að jafnaði fram á myndfundum. Flest námskeið hafa heimasíðu í kennslukerfinu Moodle. Þar hafa nemar
aðgang að námsefni frá kennara, tæki til samskipta og verkefna- og prófatöku. Auk þess færist stöðugt í vöxt að kennsla
í dagskóla sé tekin upp og henni miðlað til nema í gegnum Moodle.
Samstarfsaðilar um land allt
Lögð er rík áhersla á að myndun námshópa á þeim stöðum þar sem boðið er upp á fjarnám. Með
því móti myndast námssamfélag þar sem nemendur fá stuðning og hvatningu hver frá öðrum. Frá upphafi hefur
háskólinn átt gott samstarf við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar víða um land. Þar standa nemum til boða námsver
með vinnuaðstöðu og nettengingu, aðgengi að myndfundabúnaði og aðstöðu til próftöku. Lokapróf eru í flestum tilvikum tekin
hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvunum.
Helstu samstarfsaðilar eru:
- Sauðárkrókur: Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra
- Ísafjörður: Háskólasetur Vestfjarða
- Egilsstaðir: Þekkingarnet Austurlands
- Selfoss: Fræðslunet Suðurlands
- Húsavík: Þekkingarsetur Þingeyinga
- Reykjanesbær: Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
- Námsflokkar Hafnarfjarðar
- Akranes/Borgarnes: Símenntunarmiðstöð Vesturlands
- Vestmannaeyjar: Viska - Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja
Annað:
- Námsfyrirkomulag er misjafnt eftir deildum og væntanlegir nemendur eru beðnir um að kynna sér vel hvernig fyrirkomulag er í því námi sem þeir hyggjast innrita sig í.
- Fjarnemar greiða sömu innritunargjöld og aðrir nemendur við háskólann en gætu þurft að greiða hófleg aðstöðugjöld til viðkomandi fræðslu- eða símenntunarstöðvar.
- Nánari upplýsingar um námið og námsfyrirkomulag eru á heimasíðu deildar, í náms- og kennsluskrá og hjá viðkomandi skrifstofustjóra.


