Háskólinn á Akureyri

InnritunInntökuskilyrði í grunnnám er stúdentspróf eða sambærileg menntun (130 bóklegar og

Innritun og skrásetningargjald

Innritun
Inntökuskilyrði í grunnnám er stúdentspróf eða sambærileg menntun (130 bóklegar og fagbóklegar einingar á framhaldsskólastigi).

Umsóknarfrestur um grunn- og framhaldsnám er til 5. júní. Sótt er um rafrænt á heimasíðu háskólans þar sem umsækjendur geta fylgst með framvindu umsóknar sinnar.

Þegar umsækjandi fær jákvætt svar fær hann lykilorð sem er aðgangur að Stefaníu, innra neti skólans.  Þeir umsækjendur sem staðfesta skólavist sína með greiðslu fá síðan notendanafn og aðgangsorð uppgefið í Stefaníunni skömmu fyrir skólabyrjun sem veitir aðgang að tölvukerfi háskólans.

Skrásetningargjald
Nemendur við Háskólann á Akureyri greiða ekki skólagjöld en árlegt skrásetningargjald við skólann er 60.000 kr.

Gjaldið greiðist með heimsendum greiðsluseðli sem ennfremur birtist í netbanka viðkomandi með gjalddaga 10. júlí og  tekur skrásetning til náms við skólann gildi við greiðslu gjaldsins.

Eftir 10. júlí reiknast 15% álag en eftir 10. ágúst  er greiðsluseðillinn ógildur og telst umsækjandi hafa afþakkað skólavist ef gjaldið er ógreitt á þeim tíma.

Skrásetningargjaldið er óendurkræft nema:

Ef nemandi getur ekki stundað námið vegna veikinda getur hann fengið 75% gjaldsins endurgreitt fyrir 30. september og þá gegn framvísun læknisvottorðs þess efnis.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Vigdís Ósk Sveinsdóttir

„Lotukennsla, símat, toppkennarar og persónulegt umhverfi er ţađ sem lögfrćđikennslan viđ HA býđur upp á.“

Vigdís Ósk Sveinsdóttir hdl. hjá Lögmönnum Höfđabakka
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf