Háskólinn á Akureyri

Meginmarkmið kennslusviðs er að tryggja gott skipulag á daglegu starfi háskólans ásamt því að

Kennslusviđ

KennslusviðMeginmarkmið kennslusviðs er að tryggja gott skipulag á daglegu starfi háskólans ásamt því að veita nemendum og starfsfólki almennar upplýsingar og þjónustu. Einkunnarorð sviðsins eru: þjónustulund, ábyrgð, samvinna, jákvæðni og metnaður. 

Steinunn Aðalbjarnardóttir er forstöðumaður kennslusviðs.

Nemendaskrá og þjónustuborð
Fulltrúar á kennslusviði annast m.a. almenna afgreiðslu og upplýsingagjöf, símsvörun, útgáfu vottorða, innkaup og afgreiðslu á skrifstofuvörum fyrir starfsfólk háskólans. Fulltrúar sjá um nemendaskrá háskólans en nemendaskrá annast m.a. innritun nýnema og skráningu nemenda í og úr námskeiðum og prófum.

Sigrún Harðardóttir er afgreiðslustjóri
Ólöf Árnadóttir og Sæunn Mjöll Stefánsdóttir eru fulltrúar á kennslusviði.

Þjónustuborð nemendaskrár er inn af anddyri háskólans á Sólborg (Miðborg) og það er opið alla virka daga frá kl. 08.00 - 16.00.

Sími þjónustuborðs er: 460 8040, bréfsíma: 460 8999 og skiptiborðs 460 8000.

Hjá nemendaskrá er hægt að fá vottorð um skólavist og staðfest afrit af námsferlum og prófskírteinum. Nemendaskrá annast skráningu nemenda í sjúkra- og endurtökupróf og skráir vottorð frá nemendum vegna veikinda í prófum.

Prófstjórn
Skipulag og umsjón prófahalds fer fram á kennslusviði undir stjórn prófstjóra. Prófstjóri gefur út próftöflur og hefur yfirumsjón með prófahaldi, einkunnaskilum og skráningu einkunna.
Daníel Freyr Jónsson er prófstjóri.

Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafi veitir nemendum ráðgjöf varðandi námsval, námstækni og bætt vinnubrögð í námi, auk þess veitir hann nemendum aðstoð við úrlausn persónulegra mála sem upp kunna að koma á námstímanum. Námsráðgjafi sinnir þörfum fatlaðra nemenda sérstaklega og býður einnig upp á ráðgjafaþjónustu fyrir erlenda nemendur.
Solveig Hrafnsdóttir er náms- og starfsráðgjafi.

Alþjóðamál
Meginverkefni verkefnisstjóra alþjóðamála eru að fjalla um umsóknir frá erlendum skiptinemum og veita þeim upplýsingar og ráðgjöf varðandi skólavist í háskólanum. Jafnframt leiðbeinir hann þeim nemendum og kennurum háskólans sem hyggja á skiptinám eða starf erlendis.
Rúnar Gunnarsson er verkefnastjóri alþjóðamála.

Fjarkennsla
Meginverkefni verkefnisstjóra fjarkennslu eru að hafa yfirumsjón með fjarkennslu á vegum háskólans í samstarfi við kennsludeildir og skrifstofur fræðasviða. Verkefnisstjóri fjarkennslu annast samskipti við símenntunarmiðstöðvar vegna fjarfunda og annast umsjón og endurnýjun á þeim tækja- og hugbúnaði sem notaður er til fjarkennslu. Hann sér einnig um námskeiðahald og fræðslu fyrir notendur.
Daníel Freyr Jónsson er verkefnastjóri fjarkennslu.


Sérfræðingur í upplýsingakerfum
Meginverkefni sérfræðings í upplýsingakerfum eru að þróa upplýsingakerfið Stefaníu og hafa tæknilega yfirumsjón með vef háskólans.
Stefán Jóhannsson er sérfræðingur í upplýsingakerfum.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Áslaug Karen Jóhannsdóttir

„Fjölmiđlafrćđin er ný og spennandi námsgrein og ţess vegna valdi ég hana.“

Áslaug Karen Jóhannsdóttir blađamađur á Skessuhorni
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf