Stefna Háskólans á Akureyri er að
búa nemendum persónulegt, jákvætt og krefjandi námsumhverfi. Kennsluhúsnæðið er nýlegt með vel búnum tölvuverum og
aðstaða á bókasafni og í lesrýmum er til mikillar fyrirmyndar.
Kennsluhúsnæði
Öll kennsla á Akureyri fer fram á Sólborg og Borgum sem er á einstöku háskólasvæði í hjarta
Akureyrarbæjar.
Lesrými
Sérstök rými sem ætluð eru til lesturs og heimanáms eru á bókasafni á Sólborg og í nývígðri bygginu.
Hús háskólans eru að jafnaði opin frá klukkan 8 - 22. Við upphaf náms fá nemendur afhent lykilkort og hafa þannig aðgang að
lesrýmum hvenær sem er. Þeir sem ákveða að sinna heimanáminu á háskólasvæðinu upplifa oft líflegar umræður
við skólafélagana m.a. um námið og félagslífið.
Tölvuaðstaða
Nemendur komast í tölvur á Sóborg og á Borgum. Fartölvueign nemenda er mikil og fer ört vaxandi.
Hægt er að tengjast netinu í gegnum þráðlaust net háskólans og með því móti geta nemendur unnið á sínar
tölvur, en fengið aðstöðu í kennsluhúsnæðinu. Þessi aðferð er vinsæl, m.a. þegar hópavinna fer fram.
Bókasafn
Bókasafnið er í rúmgóðu húsnæði á Sólborg og þar er aðstaða til lesturs og tölvuvinnslu. Um er að
ræða rannsókna- og sérfræðibókasafn sem sníður kaup sín á efni að mestu leyti eftir þörfum
háskóladeildanna svo og þeim rannsóknum sem unnar eru við Háskólann. Á bókasafninu hafa nemendur aðgang að hópvinnuherbergi
og í þeim er aðgangur að tölvum og interneti. Bókasafnið er opið frá 8:00 - 18:00 alla virka daga og 12:00 - 15:00 á laugardögum.
Gagnasmiðja
Í gagnasmiðju hafa nemendur aðgang að tölvum, sérhæfðum tækjum og forritum.
Þar er einnig aðstaða til litaprentunar og frágangs á ritgerðum. Starfsfólk gagnasmiðju er til staðar til liðveislu og ráðgjafar á
opnunartíma, en gagnasmiðja er opin alla virka daga frá 8:00 - 16:00.
Kaffitería
Á Sólborg er kaffitería þar sem starfsfólk og nemendur geta sest niður þegar stund gefst og spjallað saman
yfir kaffibolla. Á virkum dögum er boðið upp á heitar máltíðir í hádeginu og seinnipartinn er alltaf eitthvað gómsætt
með kaffinu. Kaffiterían er opin alla virka daga frá 8:00 - 15:30.
Þrek- og hreyfisalur
Fyrir þá sem hafa áhuga á bættri heilsu og líðan er þrek- og hreyfisalur á Sólborg.
Salurinn er opinn mánudaga til föstudaga kl. 07:35 - 14:00 og kl. 16:00 - 21:30. Salurinn er lokaður á meðan kennslu stendur.


