Háskólinn á Akureyri

Nemendur með fatlanir og nemendur með námserfiðleika Athugið að þeir sem hafa 75% örorkumat fá 50%

Fatlanir-hamlanir

FatlanirNemendur með fatlanir og nemendur með námserfiðleika

Athugið að þeir sem hafa 75% örorkumat fá 50% afslátt af skráningargjöldum við háskólann gegn því að framvísa staðfestingu á örorkumatinu.

Náms- og starfsráðgjöf hefur umsjón með þjónustu við fatlaða nemendur og nemendur með sértækar þarfir. Þjónusta við fatlaða nemendur er unnin í náinni samvinnu við þá sjálfa og þar með einstaklingsbundið. Þannig er leitast við að tryggja að þjónustan sé löguð að þörfum þeirra sem á henni þurfa að halda hverju sinni.

Nemendum sem vilja nota þessa þjónustu er gefinn kostur á að merkja í þar til gerðan reit á almennu umsóknareyðublaði háskólans þegar sótt er um skólavist eða að hafa samband við námsráðgjafa. Til að til sértækra aðgerða geti komið vegna fötlunar eða annarra hamlana þarf að liggja fyrir greining á vandanum frá viðurkenndum sérfræðingum þar sem fram kemur hvað það er sem aftrar í námi. Náms- og starfsráðgjafi leggur mat á slíkar greiningar í samráði við nemandann, en hefur einnig samstarf við kennara viðkomandi, deildarforseta, brautarstjóra, prófstjóra og aðra sem er málið viðkomandi. Í framhaldi af því eru settar í gang viðeigandi aðgerðir til aðstoðar nemandanum. Þessar aðgerðir geta falist í aðstoð á námstíma en einnig sérstökum úrræðum vegna próftöku s.s. lengri próftíma, að taka próf á tölvu, próftöku í einrúmi o.fl.

Algengustu mál sem koma til kasta náms- og starfsráðgjafa í þessum málaflokki eru, leshamlanir (dyslexia) prófkvíði og ýmsar sálrænar eða líkamlegar fatlanir/hamlanir.

Prófkvíði
Það er ekki óeðlilegt að kvíða prófum ofurlítið og eflaust finna flestir fyrir einhverri streitu í prófatíð og/eða fyrir einstök próf. Of mikill kvíði getur þó verið hamlandi og getur jafnvel dregið úr frammistöðu á prófum. Ef um prófkvíða er að ræða getur námsráðgjafi aðstoðað. Viðtöl geta hjálpað fólki að greina hvað er eðlileg streita og hvenær um er að ræða verulegan kvíða. Við slíka greiningu er m.a. notaður prófkvíðakvarði Spielbergers sem er könnun á prófkvíða og greinir hann enn frekar í undirþætti. Í framhaldi af slíkum greiningum aðstoðar námsráðgjafi við að hefja ferli kvíðastjórnunar og einnig er boðið uppá námskeið um prófkvíða. Þegar greining liggur fyrir er hægt að taka ákvarðanir um hvaða bjargráð eru til staðar vegna próftöku og kvíðastjórnunar. Slíkar aðgerðir eru unnar í samráði við viðkomandi nemendur, prófstjóra, kennara og aðra sem eru málinu viðkomandi og eru einstaklingsmiðaðar. Athugið að kvíðastjórnun sem stunduð er jafnt og þétt er líkleg til að sýna árangur til langs tíma. Dragið því ekki að leita aðstoðar. Námsráðgjafi hefur umsjón með aðgerðum og umsýslu með málefnum prófkvíðanemenda.

ATHUGIÐ að til að sækja um framlengingu á próftíma vegna prófkvíða þarf tvennt að koma til. Annars vegar að hafa setið námskeið um prófkvíða eða að sýna fram á að hafa verið í samtalsmeðferð þar að lútandi hjá viðurkenndum sérfræðingi. Hins vegar að hafa tekið prófkvíðakvarða Speilbergers og skorað lágmark 60 stig á honum. Námsráðgjafi leggur þennan kvarða fyrir.

Leshamlanir (dyslexia)
Nemendur með leshamlanir eiga kost á aðstoð í námi og við próftöku. Greining frá viðurkenndum sérfræðingi þarf að liggja fyrir og verður sú greining að hafa farið fram eftir 16 ára aldur. Aðstoðin er m.a. falin í þjónustu á námstíma og séraðgerðir vegna próftöku. Leshamlanir geta birst í ýmsum myndum og vandinn getur því verið sértækur og einstaklingsbundinn. Þess vegna er lögð áhersla á að hver og einn fái aðstoð við sitt hæfi. Námsráðgjafi hefur umsjón með málefnum leshamlaðra innan háskólans.

Beiðnir vegna sértækra aðgerða í prófum þurfa að berast námsráðgjafa í síðasta lagi mánuði áður en próf hefjast.
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Stefán B. Sigurđsson

„Háskólinn á Akureyri veitir nemendum sínum einstakt tćkifćri til ađ taka virkan ţátt í nýsköpun ţekkingar á fjölmörgum sviđum. “

Stefán B. Sigurđsson rektor
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf