Náms- og
starfsráðgjöf háskólans býður uppá námskeið fyrir nemendur. Í boði eru námskeið í almennri
námstækni, tímastjórnun og próftökutækni. Einnig námskeið um prófkvíða.
Almenn námstækni, tímastjórnun og próftökutækni
Þetta námskeið miðar að því að þjálfa nemendur í markvissum vinnubrögðum í háskólanámi. Tekin eru
fyrir atriði eins og lestartækni, glósutækni, æfingar í minnistækni, farið er í gerð tímaáætlana og hugtakið frestun,
rætt. Einnig fá nemendur leiðbeiningar um undirbúning fyrir próf. Kennd er gerð upplestraráætlana og farið í atriði varðandi
markvissa upprifjun og gefin eru almenn heilræði um hegðun og lifnaðarhætti í prófatíð. Þetta námskeið er að jafnaði
haldið í september ár hvert.
Prófkvíði
Á þessu námskeiði er kvíðahugtakið rætt, farið er í kvíðastjórnun rædd atriði varðandi aðgerðir sem
nemendum standa til boða vegna prófkvíða. Slökun er kennd á námskeiðinu.
ATHUGIÐ að til að sækja um framlengingu á próftíma vegna prófkvíða þarf tvennt að koma til. Annars vegar að hafa setið
námskeið um prófkvíða eða að sýna fram á að hafa verið í samtalsmeðferð hjá viðurkenndum
sérfræðingi þar að lútandi. Hins vegar að hafa tekið prófkvíðakvarða Speilbergers og skorað lágmark 60 stig á honum.
Námsráðgjafi leggur þennan kvarða fyrir.


