Háskólinn á Akureyri

Náms- og starfsráðgjafi aðstoðar nemendur við að leysa persónuleg mál sem upp geta komið á

Persónuleg ráđgjöf

Persónuleg ráðgjöfNáms- og starfsráðgjafi aðstoðar nemendur við að leysa persónuleg mál sem upp geta komið á námstímanum. Háskólaárin eru oft tími mikilla breytinga hjá fólki sem geta verið streituvaldandi. Auk þessa eru nemendur oft undir miklu námsálagi á háskólaárum sínum. Þetta aukna álag getur valdið tímabundnum tilfinningaröskunum og röskunum á félagslegum högum nemenda.

Vandamál sem nemendur geta þurft að glíma við á háskólaárum sínum eru t.d. samskiptaörðugleikar við fjölskyldu, vini, kennara og samnemendur. Einnig; hjónaskilnaðir og aðrar breytingar á fjölskylduhögum, ýmsar kvíðaraskanir og þunglyndi, misnotkun áfengis eða lyfja, minnkað sjálfstraust og ýmsir sállíkamlegir örðugleikar.

Veitt eru ráð og leiðbeiningar varðandi hvernig hægt er að vinna að því að leysa slík mál. Við þessa ráðgjöf er beitt aðferðum sem miða að því að að efla einstaklinginn til vitundar um eigin verðleika og eigin hæfileika til að leita lausna á vanda þeim sem við blasir hverju sinni. Námsráðgjafi getur veitt skammtímameðferð þegar um vanda er að ræða af félagslegum eða sálrænum toga sem aftrar námsframvindu. Í slíkri meðferð er leitast við að greina vandann og styrkja einstaklinginn til vitundar um hvaða bjargráð hann/hún hefur. Ef um langvinnan vanda er að ræða er boðið upp á tilvísanir til annarra sérfræðinga.

Náms- og starfsráðgjafi sinnir einnig umsýslu vegna fatlaðra nemenda og nemenda með námsörðugleika, með það að markmiði að efla þá til sjálfshjálpar og styrkja í námi. Ráðgjafi aðstoðar einnig og leiðbeinir erlendum nemendum við Háskólann á Akureyri einkum varðandi námsval og persónulega ráðgjöf.

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
María Einarsdóttir

„Ţetta er lítill og persónulegur háskóli ţar sem ţú ert ekki einn af hundrađ í bekk, ţess vegna fćr mađur mikiđ út úr náminu.“

María Einarsdóttir nemandi í iđjuţjálfunarfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf