Hlutverk
náms - og starfsráðgjafar er margþætt en helstu áherslur eru:
Að leiðbeina núverandi og væntanlegum nemendum háskólans um val á námi. Námsráðgjafi veitir ráðgjöf og
upplýsingar um námið og þjónustu innan háskólans sem nemendur og almenningur eiga kost á. Einnig eru veittar almennar upplýsingar um
nám.
Að veita einstaklingum og hópum leiðsögn á meðan á námi stendur, ekki síst um bætt vinnubrögð í námi.
Háskólanám gerir kröfur um að nemendur kunni að vinna sjálfstætt og einkum eru það kröfur um vinnuframlag í
háskólanámi sem koma oft á óvart. Sjálfstætt nám er því stór þáttur í háskólanámi.
Námsráðgjafi leiðbeinir einstaklingum og hópum hvernig hægt er að tileinka sér öguð vinnubrögð og tímastjórnun. Í
því skyni er boðið upp á námskeið í almennri og sértækri námstækni.
Að veita nemendum persónulega ráðgjöf m.a. um námsframvindu og einkalíf. Námsráðgjafi aðstoðar nemendur við að leysa
persónuleg mál sem upp geta komið á námstímanum.
Að leiðbeina nemendum um val á námi bæði hérlendis og erlendis. Einnig er bent á þá þjónustu innan háskólans sem
m.a. sér um skiptinám á vegum háskólans, varðandi ráð og leiðbeiningar um nám erlendis.
Að hafa umsýslu með málefnum fatlaðra og annarra nemenda sem eiga við námsörðugleika að stríða.


