Háskólinn á Akureyri

Ágætu nemendurInn á þessa síðu hef ég sett tengla í nokkra texta sem ég hef tekið saman um

Ýmislegt um námstækni

Ágætu nemendur

Inn á þessa síðu hef ég sett tengla í nokkra texta sem ég hef tekið saman um ýmislegt sem varðar námstækni. Textana hef hef ég valið að kalla minnispunkta og ég hef sett þá saman í þeim tilgangi að auðvelda ykkur lífið í háskólanum af því ég trúi því að öguð vinnubrögð séu stór og mikilvægur þáttur í því að gera fólk að góðum námsmönnum. Innihaldið í minnispunktunum er fengið héðan og þaðan úr bókum um námstækni og fleiru og af ýmsum vefsíðum háskóla, aðallega í BNA. Síðast en ekki síst eru textarnir byggðir á þeirri reynslu sem ég hef fengið í vinnu minni hér við HA og því sem ég hef lært af því umgangast nemendur hér. Ég get þess í lokin á hverjum texta fyrir sig hvaðan efnið er fengið og um það gilda að sjálfsögðu reglur um höfundarrétt sem og þá texta sem ég hef sett hér inn.

Það er von mín að þið getið fært ykkur þessa minnispunkta í nyt og að þeir auðveldi ykkur skólastarfið. Ég hef valið að kalla þessa texta minnispunkta þar sem þeir eru í því formi að vekja fólk til umhugsunar um hvert efni fyrir sig en einnig eru þarna hagnýtar ráðleggingar. Ég skal með ánægju benda á ítarefni um einstöku málefni ef nemendur kjósa að lesa meira.

Með bestu kveðju, Solveig

 

Minnispunktar um almenna námstækni

Minnispunktar um próf og próftökutækni

Minnispunktar um frestun

Minnispunktar um tímastjórnun

Minnispunktar um streitu

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Fjóla Þorsteinsdóttir

„Persónulegt námsumhverfi er það sem heillar mig mest við Háskólann á Akureyri.“

Fjóla Þorsteinsdóttir viðskiptafræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf