Háskólinn á Akureyri

Háskólinn á Akureyri býður nemendum með lestrarörðugleika og fötlun af ýmsum

Ţjónusta fyrir nemendur međ sérţarfir í námi

Þjónusta fyrir nemendur með sérþarfir í námiHáskólinn á Akureyri býður nemendum með lestrarörðugleika og fötlun af ýmsum toga margvíslega þjónustu og sérúrræði í samræmi við stefnu háskólans um jafnt aðgengi að námi og störfum.

Þjónusta sem stendur til boða:

  • almennur aðbúnaður í húsnæði HA í samræmi við lög og þarfir nemenda
  • kynning og leiðsögn um háskólasvæðið, sérstaklega ætlað nemendum með hreyfihömlun og sjón- og heyrnarskerðingu. Getur farið fram áður en nám hefst ef óskað er
  • tækniaðstoð vegna almennrar tölvunotkunar innan kerfis HA
  • aðgangur að búnaði og tækniaðstoð vegna skönnunar námsefnis inn í tölvur
  • sértæk einstaklingsbundin aðstoð vegna töku prófa
  • aðstoð á námstíma í sanngjörnu samræmi við sérþarfir nemenda og fjárhag HA
  • aðstoð við að nota þjónustu bókasafns, s.s. við heimildaleit og ljósritun
  • aðstoð við að nota þjónustu gagnasmiðju og sérhæfð forrit, s.s. lesvél
  • aðstoðarfólk eftir því sem við á
  • málsvari innan HA
  • aðgangur að námsráðgjafa til persónulegra viðtala
  • námskeið um námstækni og um kvíðastjórnun
  • vinnusmiðjur (workshops) til að stuðla að velgengni í námi
  • tilvísanir til sérfræðinga utan HA eftir því sem við á


Þjónusta sem ekki er hægt að veita:

  • ferliþjónusta
  • tölvur eða tölvubúnaður til persónulegra nota meðan á námi stendur
  • persónuleg þjónusta af öðru tagi en fram kemur í þessum bæklingi
  • greiðsla fyrir vottorð sem kann að verða óskað eftir

Það sem nemendur þurfa að gera:

  • leggja fram greiningu/vottorð frá sérfræðingi sem staðfestir fötlun eða sértæka námsörðugleika
  • merkja á umsóknareyðublað við upphaf skólagöngu að um fötlun eða sértæka námsörðugleika sé að ræða eða panta viðtal við námsráðgjafa
  • þekkja reglur HA og fylgja þeim í hvívetna
  • bera sig eftir þeirri þjónustu sem í boði er

Saman getum við:

  • komið á samvinnu sem byggir á gagnkvæmu trausti
  • notað réttar boðleiðir innan háskólans til hagsbóta og betri árangurs fyrir alla
  • unnið gegn fordómum og vanþekkingu með því að læra hvert af öðru um mannlegan margbreytileika í anda jafnréttissjónarmiða


Náms- og starfsráðgjöf HA veitir frekari upplýsingar um þá þjónustu sem nemendum með lestrarörðugleika og fötlun af ýmsum toga stendur til boða. Hringið í síma 460-8034 (skiljið eftir skilaboð í talhólfi) eða skrifið á radgjof@unak.is

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Lára Kristín Jónsdóttir

„Ástćđan fyrir ţví ađ ég kaus ađ leggja stund á nám í hjúkrunarfrćđi er sú ađ mér finnst hjúkrun vera heillandi starf sem opnar fjölmargar dyr. “

Lára Kristín Jónsdóttir hjúkrunarfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf