Háskólinn á Akureyri
Dósent við HA tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis
nútímafræði við Háskólann á Akureyri, var nýverið  tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda
fræðirita og kennslugagna, fyrir bókina Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar. Þessi
viðurkenning er veitt árlega fyrir samningu fræðirita, kennslugagna, aðra miðlun fræðilegs efnis eða rannsóknir, en samtals voru 10 verk tilnefnd.
Tilkynnt verður hvert þeirra hlýtur viðurkenninguna á næstu vikum.
Hér má sjá lista yfir þá höfunda og
verk sem fengu tilnefningu.
Nemendur í sjávarútvegsfræði við rannsóknarstörf
háskólanum og er fjarri því að þau tengist öll bóklestri. Föstudagsmorguninn 3. febrúar voru til að mynda nemendur
í sjávarútvegsfræði að mæla fiska og rannsaka innyfli og innihald í maga þeirra. Við látum fylgja með myndir af glaðbeittum og
áhugasömum nemendum við rannsóknir.
Málþing - efling sveitarstjórnarstigsins, niðurstöður skýrslu
sveitarstjórnarstigsins,
Innanríkisráðuneytisins og Háskólans á Akureyri föstudaginn 10. febrúar. Málþingið stendur frá kl. 11:00 til 15:30 í
stofu M101 á Sólborg v/Norðurslóð.
Efni málþingsins er kynning á niðurstöðum skýrslu um viðhorf sveitarstjórnarmanna og Alþingismanna til eflingar
sveitarstjórnarstigsins.
Fundarstjóri: Elín R Líndal, sveitarstjórnarfulltrúi í Húnaþingi vestra
Tilkynna skal þátttöku með tölvupósti á netfangið: arny.g.olafsdottir@irr.is.
Þeir sem ekki eiga heimangengt geta fylgst með dagskránni á vefnum og verða nánari upplýsingar settar inn síðar.
Smellið hér til að skoða dagskrá málþingsins.
Myndbandasamkeppni - Erasmus 25 ára 2012
ári.
Af því tilefni mun bæði framkvæmdastjórn ESB og landskrifstofur Erasmus standa fyrir ýmsum viðburðum næsta vor.
Landskrifstofa Erasmus á Íslandi og íslensku háskólarnir hafa af þessu tilefni ákveðið að efna til myndbandasamkeppni meðal
fyrrverandi og núverandi Erasmus stúdenta.
Einu skilyrðin eru að myndbandið veki áhuga áhorfandans á Erasmus stúdentaskiptum og lengd þess á að vera 2 til 5
mínútur.
Efnistök geta verið mjög fjölbreytt, t.d.
- myndbrot frá Erasmus dvöl og settar inn skýringar með tali og/eða texta (má setja saman myndbrot frá fleiri en einum stúdent)
- frásögn af því hvernig er að vera í skiptinámi (heimildamyndastíll)
- leikið efni
- ... hvað sem er svo lengi sem það vekur áhuga á Erasmus stúdentaskiptum
1. Verðlaun* = 150.000 kr.
2. Verðlaun* = 75.000 kr.
3. Verðlaun* = 50.000 kr.
*Sá fyrirvari er gerður að 10 eða fleiri myndbönd sem uppfylla kröfur þurfa að berast. Séu þau færri áskilur landskrifstofa og
háskólarnir sér þann rétt að breyta upphæðum í verðlaunafé.
Frestur til að skila inn myndböndum er til 1. apríl 2012.
Hægt er að skila inn myndböndum með því að;
- setja myndbandið á geisladisk og skila til alþjóðafulltrúa þíns skóla.
Með því að senda myndband í keppnina veitir eigandi þess landskrifstofu Erasmus og háskólum heimild til að birta það á
vefsíðum sínum. Öll önnur notkun á myndbandinu er háð samþykki eiganda þess.
Með von um að fá að sjá myndbönd frá sem flestum.
Hafið endilega samband við alþjóðafulltrúa ykkar heimaskóla ef það eru einhverjar spurningar.
Óskar Eggert Óskarsson (oeo@hi.is), landskrifstofa Erasmus
Alma Ragnarsdóttir (alma@lhi.is), Listaháskóli Íslands
Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir (gudlaugm@ru.is), Háskólinn í Reykjavík
Magnús Smári Snorrason (maggi@bifrost.is), Háskólinn á Bifröst
Rúna Vígdís Guðmarsdóttir (ruv@hi.is) , Háskóli Íslands
Rúnar Gunnarsson (runarg@unak.is), Háskólinn á AkureyriÞorbjörg Valdís
Kristjánsdóttir (tvk@lbhi.is), Landbúnaðarháskóli Íslands
Hvalveiðiþjóðir gætu grætt meira á hvalaskoðun
hvalaskoðunar á Íslandi og í Japan. Höfundar greinarinnar eru Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála
og dósent við Háskólann á Akureyri, Paul Cunningham við Rikkyo háskóla í Japan og Stephen Wearing við Tækniháskólann
í Sydney, og komast þeir að þeirri niðurstöðu að hvalaskoðun væri vænlegri leið til tekjuauka fyrir byggðir landanna tveggja. Á
heimasíðu Tækniháskólans í Sydney má finna frétt um greinina.
Greinina í fullri lengd er hægt að finna með þessari vísun:
Cunningham, P. Huijbens, E. & Wearing, S. 2012: Whaling or Watching: Twisting the sustainability rhetoric and possible outcomes. In Journal of Sustainable Tourism, 20(1): 143-161.