Háskólinn á Akureyri

Ráðstefna um stöðu og framtíð líftækni á Íslandi verður haldin föstudaginn 16.

Ráđstefna um stöđu og framtíđ líftćkni á Íslandi

Ráðstefna um stöðu og framtíð líftækni á Íslandi verður haldin föstudaginn 16. nóvember nk. á vegum Viðskipta- og raunvísindadeildar Háskólans á Akureyri. Ráðstefnan fer fram í húsnæði Háskólans á Borgum v/Norðurslóð.

Smelltu hér til að skoða dagskrána.

Markmið ráðstefnunnar er að fá fram upplýsingar um stöðu líftækni á Íslandi með því að kynna starfsemi fyrirtækja og háskóla á þessu sviði og fá fram upplýsingar um störf, stefnu og þörf fyrir þekkingu og starfsfólk á næstu árum. HA mun kynna kennslu og rannsóknir sínar og vonast til að fá umræður og viðbrögð („feedback") frá þátttakendum varðandi áherslur og stefnu sem HA ætti að hafa á leiðarljósi næstu árin varðandi frekari uppbyggingu á kennslu og rannsóknum á sviði líftækni.

Ráðstefnan opin öllum sem áhuga hafa, en þátttakendur eru beðnir um að skrá þátttöku með tölvupósti á netfangið laragudmunds@unak.is. Athugið að lokadagur skráningar er mánudaginn 12. nóvember n.k. og að ókeypis aðgangur er á ráðstefnuna.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Barbara Helgadóttir

„Háskólinn á Akureyri er mjög góđur skóli. Ég er sérstaklega ánćgđ međ símatiđ sem er í sálfrćđinni.“

Barbara Helgadóttir nemandi í sálfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf