Háskólinn á Akureyri

Ráðstefnan Betri í dag en í gær um nám og gæði í háskólum verður haldin

Betri í dag en í gćr – nám og gćđi í háskólum

Ráðstefnan Betri í dag en í gær um nám og gæði í háskólum verður haldin við Háskólann á Akureyri 30.-31. maí nk.  Ráðstefnan er skipulögð á vegum íslensku Bolognasérfræðinganna og mennta- og menningarmálaráðuneytisins. 

Íslenskir háskólar standa á tímamótum í mörgu tilliti og ekki hvað síst í gæðamálum. Verið er að undirbúa nýtt skipulag gæðaeftirlits þar sem áhersla er lögð á gæðaumbætur og fyrstu tíu ár Bolognaferlisins eru að baki. Það er því rík ástæða til að skoða hvernig til hefur tekist með mikilvægan hornstein þess, gæðin. 

Dagskrá ráðstefnunnar er fjölbreytt en m.a. verður fjallað um hið nýja gæðaráð háskólanna, hver beri á byrgð á gæðum náms og kennslu á háskólastigi, hvernig við eflum gæði, ný viðmið um æðri menntun og prófgráður, innleiðingu hæfniviðmiða, vinnuálag nemenda og ECTS einingar svo eitthvað sé nefnt. Í lok ráðstefnunnar verður boðið upp á málstofur þar sem fjallað verður um nemendamiðaða kennslu og námsmat.

Markhópur ráðstefnunnar er allt starfsfólk háskólastigsins, stjórnendur og kennarar en nemendur á háskólastigi eru sérstaklega boðnir velkomnir á ráðstefnuna. Ráðstefnugjald er kr. 8.000.- fyrir aðra en nemendur sem greiða kr. 4.000.- fyrir þátttökuna. Rafræn skráningarsíða er aðgengileg frá tengli hér til vinstri. 

Frekari upplýsingar um ráðstefnuna veita:

Sigrún Magnúsdóttir, forstöðumaður kennslusviðs og gæðastjóri, sími: 460 8061,  tölvupóstur sigrun@unak.is   
Sæunn Mjöll Stefánsdóttir, fulltrúi á kennslusviði HA, sími: 460 8038, tölvupóstur saeunn@unak.is

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Gústaf Línberg Kristjánsson

„Sjávarútvegsfrćđi er ţverfaglegt nám sem gefur möguleika á fjölbreyttu meistaranámi.“

Gústaf Línberg Kristjánsson nemandi í sjávarútvegsfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf