Háskólanum á Akureyri 8. og 9. maí 2009
Á ráðstefnunni verða kynntar fjölbreytilegar rannsóknir á íslensku þjóðfélagi frá sjónarhóli félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og skyldra greina. Ráðstefnunni er ætlað að skapa umræðuvettvang þjóðfélagsfræðinga sem starfa í háskólum, framhaldsskólum og við rannsóknir á öðrum vettvangi. Jafnframt mun ráðstefnan gefa nemendum á háskóla- og framhaldsskólastigi kost á því að kynnast og taka þátt í fræðastarfi þjóðfélagsfræðinnar.
Meðal efnis á ráðstefnunni má nefna:
| - Afbrot í samfélaginu | - Íslensk og alþjóðleg menning |
| - Alþjóða- og þróunarmál | - Íþróttir og hreyfing |
| - Byggðaþróun | - Kennsla í þjóðfélagsfræði |
| - Efnahagsþróun á Íslandi | - Kynjafræði |
| - Ferðamálafræði | - Málefni innflytjenda |
| - Fjölskyldur á Íslandi | - Menntun og skóli |
| - Fjölmiðlar og samfélag | - Rannsóknaraðferðir |
| - Forvarnir og vímuefni | - Stjórnmál og stjórnkerfi |
| - Heilbrigði og samfélag | - Vinnumarkaður og atvinnulíf |
Að ráðstefnunni standa eftirtaldir aðilar:
Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Framhaldsskólinn á Húsavík, Framhaldsskólinn á Laugum, Menntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Egilstöðum, Menntaskólinn á Ísafirði, Verkmenntaskóli Austurlands, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Samtök félagsfræðinga á Norðurlandi.


