Undur náttúrunnar - Dagskrá
Ráðstefnan verður haldin þriðjudaginn 24. nóvember 2009 í stofu R316 að Borgum, rannsókna- og nýsköpunarhúsi Háskólans á Akureyri. Útvarpsmaðurinn knái, Pétur Halldórsson, mun stýra fundi og leiða umræður.
9:00 til 9:10 Setningarávarp rektors HA, Stefáns B. Sigurðssonar
Fyrsti fundur. Náttúra Norðurlands: Svipmyndir úr dýraríki, jurtaríki og hinum hulda heimi örvera
9:10 Hreiðar Þór Valtýsson, lektor við auðlindadeild HA, flytur erindið Auðlindir hafs í Eyjafirði og áhrif umhverfisins.
9:30 Hjörleifur Einarsson, prófessor við auðlindadeild HA, flytur erindið Margur er knár þó hann sé smár.
9:50 Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands, flytur erindið Út í skóg að svipast um í svepparíkinu.
10:10 Jóhannes Árnason, kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri flytur erindið Aspirnar eru illgresi?
10:20 Umræður
10:35 Kaffi
Annar fundur. Sameinaðir stöndum vér: Sambýli örvera, dýra og jurta í náttúru Íslands
10:50 Oddur Vilhelmsson, dósent við auðlindadeild HA, flytur erindið Þröng í þalinu: Ljósóháð bakteríusamfélög í íslenskum fléttum.
11:10 Arnheiður Eyþórsdóttir, aðjúnkt við auðlindadeild HA, flytur erindið Einkalíf svampa.
11:30 Ólafur S. Andrésson, prófessor við Háskóla íslands, flytur erindið Erfðamengi sambýlis: Raðgreining á himnuskóf.
11:50 Umræður
12:05 Matur
Þriðji fundur. Vor dýrasti arfur: Hlutverk erfða í þróun lífvera
13:10 Kristinn P. Magnússon, dósent við auðlindadeild HA og sérfræðingur á Akureryrarsetri NÍ, flytur erindið Ertu skoffín? 13:30 Stefán B. Sigurðsson, rektor HA, flytur erindið Meðfæddir hæfileikar eða þjálfun í íþróttum - Hvort ræður úrslitum?
13:50 Stefán Óli Steingrímsson, dósent við Háskólann á Hólum flytur erindið Ferskvatnsfiskar og fábreytni íslenskrar náttúru.
14:10 Umræður
14:25 Kaffi
Fjórði fundur. Úrsmiðurinn blindi: Þróun mannsaugans, finkugoggsins og annarra furðuverka
14:40 Arnar Pálsson, dósent við Líf-og umhverfisvísindadeild HÍ flytur erindið Náttúrulegt val og fjölbreytileiki lífsins.
15:00 Hafdís Hanna Ægisdóttir, verkefnisstjóri við Landbúnaðarháskóla Íslands, flytur erindið Darwin og lífríki eyja.
15:20 Þórir Haraldsson, kennari við Menntaskólann á Akureyri, flytur erindið Aðlögun hvítabjarna að óvistlegu umhverfi.
15:50 Umræður
16:00 Kaffi
Fimmti fundur. Hvað þýðir þetta allt? Áhrif þróunarkenninga á hugmyndasögu og vísindaheimspeki
16:15 Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor við Háskóla Íslands, flytur erindið Þróunarkenningin í ljósi vísindaheimspekinnar.
16:35 Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur við Reykjavíkurakademíuna flytur erindið Landnám þróunarkenningarinnar á Íslandi, 1872-1910.
16:55 Guðmundur Guðmundsson, forstöðumaður safnasviðs NÍ, flytur erindið Tegundir, þróun og flokkunarkerfi í ljósi Uppruna tegundanna.
17:15 Umræður
17:30 Samantekt og málstofuslit
17:45 Móttaka


