Undur náttúrunnar
Ráðstefna um náttúruvísindi á Akureyri 24. nóvember 2009
Þann 24. nóvember 1859, fyrir réttum 150 árum, gaf John Murray, bókaútgefandi í London, út bók með titlinum On the Origin of Species by Means of Natural Selection, or the Preservation of Favoured Races in the Struggle for Life eftir tiltölulega lítt þekktan náttúrufræðing, Charles R. Darwin að nafni. Þrátt fyrir þennan langlokutitil seldist kverið vel og átti eftir að koma út í fjölmörgum útgáfum og þýðingum um ókomin ár. Það er kunnara en frá þurfi að segja að bók þessi olli straumhvörfum í lífvísindum og raunar hugmyndasögunni allri. Stutt æviágrip Darwins og umfjöllun um þróunarkenningu hans má nálgast hér. Þess má geta að Hið íslenska Bókmenntafélag gaf Uppruna tegundanna út á íslensku árið 2004, og einnig bók Þorvaldar Thoroddsen um kenningu Darwins, Um uppruna dýra og jurta, árið 1998.
Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum minnast þessarra tímamóta með sameiginlegri málstefnu um lífvísindi í víðu samhengi. Dagskrá ráðstefnunnar er hægt að nálgast hér, svo og ágrip erinda. Málstefnan verður öllum opin, en þeim sem hyggjast mæta er bent á að skrá þátttöku sína. Skráningin er ekki bindandi og aðgangur er ókeypis.
Frekari upplýsingar veitir Oddur Þ. Vilhelmsson, s. 462 2215 / 697 4252, eða í tölvupósti, oddurv@unak.is.



