6. ráðstefnan um rannsóknir á íslensku þjóðfélagi
Háskólanum á Akureyri, 20. – 21. apríl 2012
Föstudaginn 20. apríl og laugardaginn 21. apríl 2012 verður 6. ráðstefnan um rannsóknir á íslensku þjóðfélagi haldin í tengslum við 25 ára afmæli Háskólans á Akureyri. Á ráðstefnunni munu háskólakennarar, sérfræðingar við rannsóknarstofnanir, sjálfstætt starfandi rannsóknafólk, háskólanemar á framhaldsstigi og annað rannsóknarfólk kynna niðurstöður fjölbreyttra rannsókna á íslensku þjóðfélagi frá sjónarhóli félags- og mannvísinda.
Meðal efnis á ráðstefnunni má nefna:
| - Afbrot í samfélaginu | - Íþróttir og hreyfing |
| - Alþjóða- og þróunarmál | - Kynjafræði karla og kvenna |
| - Efnahagsþróun á Íslandi | - Mannfjöldi og búsetuþróun |
| - Ferðamál og ferðaþjónusta | - Málefni innflytjenda |
| - Forvarnir og vímuefni | - Menning og samfélag |
| - Fjölskyldur á Íslandi | - Menntun og skóli |
| - Fjölmiðlar og samfélag | - Samfélagsleg áhrif samgangna |
| - Háskólar og byggðaþróun | - Stjórnmál og stjórnkerfi |
| - Heilsa og heilbrigðisþjónusta | - Vinnumarkaður og atvinnulíf |
Höfundar erinda og veggspjalda:
Þeir sem hafa áhuga á því að flytja erindi á ráðstefnunni skulu senda titil og 150 orða útdrátt á netfang ha.radstefna2012@gmail.com í síðasta lagi 1. mars 2012.
Skráning:
Skráning á ráðstefnuna er hafin og felst í því að senda nafn, netfang, símanúmer og aðsetur á ha.radstefna2012@gmail.com í síðasta lagi 1. apríl 2012. Skráningargjald er kr. 5.000, innifalin er
þátttaka, gögn ráðstefnunnar, kaffiveitingar og móttaka.
Nemendur skrái sig einnig á ráðstefnuna en eru undanþegnir skráningargjaldi.
Höfundar fræðigreina:
Höfundum erinda og veggspjalda býðst að leggja fram greinar til birtingar í Íslenska þjóðfélaginu, tímariti
Félagsfræðingafélags Íslands, sjá http://www.thjodfelagid.is/. Handrit skulu send ha.radstefna2012@gmail.com í síðasta lagi 1. júní 2012. Niðurstöður ritrýni munu liggja
fyrir 15. september og samþykktar greinar birtast rafrænt fyrir árslok 2012.
Skipulagning ráðstefnunnar:
Undirbúningsnefnd: Andrea Hjálmsdóttir, Birgir Guðmundsson, Edward H Huijbens, Grétar Þór Eyþórsson, Hermína
Gunnþórsdóttir, Kjartan Ólafsson og Þóroddur Bjarnason. Starfsfólk: Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir og Ingibjörg
Elín Halldórsdóttir.


