Sjöunda ráðstefna IASSA, sem kallast International Congress of the Arctic Social Sciences (ICASS VII), verður haldin í húsakynnum Háskólans á
Akureyri dagana 22.-26. júní 2011.
Vinnuheiti ráðstefnunnar er Circumpolar Perspectives in Global Dialogue: Social Sciences Beyond the IPY.
Á ráðstefnunni munu bjóðast fjölbreytt tækifæri til að skiptast á upplýsingum um rannsóknir á sviði félagsvísinda á norðurslóðum og til að brjóta til mergjar niðurstöður Alþjóða heimskautaársins (IPY) á sviði félags- og mannvísinda, og tengdra þátta. Meðal annars verða sérstakar verkefnalotur, pallborðsumræður, opnar kynningar og gestafyrirlestrar. Listi yfir tillögur að ráðstefnuþemum verður birtur í október 2010.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á heimasíðu IASSA www.iassa.org.



