Miðvikudaginn 19. september 2007 verður 2. lýðheilsuþing félags um lýðheilsu haldið á Akureyri í samstarfi við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri. Þingið ber yfirskriftina Búseta og lýðheilsa og fer fram í stofu L201 á Sólborg. Í boði er afar áhugaverð og fjölbreytt dagskrá. Þingið er opið öllum og er jafnframt hluti af þverfaglegu meistaranámi í heilbrigðisvísindum við heilbrigðisdeild HA. Þátttökugjald er 2.000 krónur, en meistaranemar í heilbrigðisvísindum við HA eru undanþegnir greiðslu.
Smelltu hér til að skoða dagskrá þingsins
Auk fyrirlestra verður veggspjaldakynning. Þar geta allir sem þess óska sent inn útdrátt að hámarki 250 orð. Stærð veggspjalds á ekki að vera meiri en 80x120 cm. Í lok þingsins verður nemenda á framhaldsskólastigi veitt peningaverðlaun fyrir besta veggspjaldið. Skilafrestur til að senda inn útdrátt er mánudagurinn 2. september nk.


