Ráðstefna um sorg og sorgarúrvinnslu á vegum Heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri verður haldin 22. september 2007 í húsnæði háskólans að Sólborg. Hún er opin öllum og er jafnframt hluti af þverfaglegu meistaranámi í heilbrigðisvísindum við heilbrigðisdeild HA.
Innlendir fyrirlesarar eru úr stétt hjúkrunarfræðinga, lækna, presta, sálfræðinga, og músikþerapista. Fjallað verður um breytilegar myndir sorgarinnar og hvernig má vinna með ýmsum hætti að því að búa fólk undir sorgarferlið og einnig hvernig heilbrigðisstarfsfólk getur á faglegan hátt unnið með syrgjendum og verið þeim styrkur.
Gestafyrirlesarar eru Dr. Bente Appel Esbensen, lektor og hjúkrunarfræðingur, Krabbameinsfélagi Danmerkur og séra Lars-Erik Christiansen, sjúkrahúsprestur, Södersjukhuset, Stokkhólmi.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna, skráningu og greiðslumáta er að finna á slóðinni: http://radstefnaumsorg.muna.is/


