Háskólinn á Akureyri

Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði verður haldin í Háskólanum á

Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði 2007

Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði verður haldin í Háskólanum á Akureyri dagana 27. - 28. apríl 2007 nk. Ráðstefnan fer fram í húsnæði háskólans á Sólborg v/Norðurslóð.

Á ráðstefnunni verða kynntar margvíslegar rannsóknir á íslensku þjóðfélagi frá sjónarhóli félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og skyldra greina. Ráðstefnunni er ætlað að skapa umræðuvettvang þjóðfélagsfræðinga sem starfa í háskólum, framhaldsskólum og við rannsóknir á öðrum vettvangi. Jafnframt mun nemendum á háskóla- og framhaldsskólastigi gefast kostur á því að kynnast og taka þátt í fræðastarfi þjóðfélagsfræðinnar.

Á ráðstefnunni verða flutt sextíu erindi um margvíslegar rannsóknir á íslensku þjóðfélagi. Ráðstefnan skiptist í tólf málstofur og er efni þeirra Hnattvæðing og stjórnmál; Vímuefni og forvarnir; Þjóð og menning; Ísland og umheiminn; Fjölmiðlar og fjölmiðlun; Skóli og samfélag; Börn og unglingar; Atvinnu- og ferðamál; Jafnrétti og samfélag; Byggðaþróun á Íslandi; Heilbrigði og samfélag; og Glæpir og refsingar.

Ráðstefnan fer fram við Háskólann á Akureyri og er skráning hafin á vefslóðinni www.unak.is/radstefnur. Ráðstefnugjald er kr. 5.000 og eru ráðstefnugögn og kaffiveitingar innifaldar í ráðstefnugjaldinu. Háskólanemar og framhaldsskólanemar eru undanþegnir ráðstefnugjaldi en skulu þó einnig skrá sig til ráðstefnunnar.

Allir framhalds- og háskólar frá Ísafirði til Neskaupsstaðar standa að ráðstefnunni; Menntaskólinn á Ísafirði, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra; Menntaskólinn á Akureyri; Verkmenntaskólinn á Akureyri; Háskólinn á Akureyri; Framhaldsskólinn á Laugum; Framhaldsskólinn á Húsavík; Menntaskólinn á Egilsstöðum og Verkmenntaskóli Austurlands. Félagsmálaráðuneytið veitir styrk til ráðstefnunnar.

Hægt er að skoða dagskrá ráðstefnunnar með því að smella hér.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Hafdís Huld Björnsdóttir

„Skiptinám mitt við University of Manitoba í Winnipeg veitti mér ómetanlega reynslu og víkkaði sjóndeildarhringinn til muna. “

Hafdís Huld Björnsdóttir nemandi í viðskiptafræði
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf