Það er stefna Háskólans á Akureyri að efla háskólann sem vísindastofnun m.a. með því að skapa vettvang fyrir starfsfólk til að gefa út rannsókna- og fræðirit sín bæði á prenti og í stafrænni útgáfu. Mikilvægt er að auka sýnileika háskólans í samfélaginu og miðla nýrri þekkingu til almennings og vísindasamfélagsins með virku útgáfustarfi starfsmanna háskólans og stofnana hans.
Fyrirspurnum um útgáfumál Háskólans á Akureyri svarar:
Úlfar Hauksson
Forstöðumaður fjármála-, starfsmanna og rekstrarsviðs
Háskólanum á Akureyri
v. Norðurslóð
600 Akureyri
Netfang: ulfar@unak.is
Sími: 460 8011


