Háskólinn á Akureyri

Nýleg rit Lengi býr að fyrstu gerð: Þjálfun nýrra starfsmanna Í ritinu  Lengi býr að

Rit

Nýleg rit

Lengi býr að fyrstu gerð: Þjálfun nýrra starfsmanna
Í ritinu  Lengi býr að fyrstu gerð: Þjálfun nýrra starfsmanna leggja Ingi Bogi Bogason og Ingi Rúnar Eðvarðsson sig fram um að kynna fyrir stjórnendum fyrirtækja mikilvægi þjálfunar og fræðslu fyrir nýráðið starfsfólk. Af hverju er skipuleg nýliðaþjálfun mikilvæg? Hvernig leiðbeina stjórnendur nýjum starfsmönnum með árangursríkum hætti? Hvaða máli skiptir mannauðsstjórnun í þessu samhengi?

Ritið er hugsað sem handhægt hjálparrit fyrir stjórnendur og aðra sem fara með stjórn og þjálfun starfsfólks í fyrirtækjum.

Háskólinn á Akureyri og Samtök iðnaðarins eru útgefendur ritsins.

 

Leitin lifandi - líf og störf sextán kvenna
Sextán konur, sem allar hafa lokið doktorsnámi við erlenda háskóla, eiga kafla í bókinni. Þær starfa ýmist við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri eða Kennaraháskóla Íslands og hafa allar, um lengri eða skemmri tíma, stundað eigin rannsóknir og miðlað þeim ríkulega í ræðu, kennslu og riti. Í bókinni greina konurnar frá eigin fræða- og rannsóknarsviði, hvernig áhugi þeirra á því vaknaði og  hvernig þeirra eigin lífssaga og persónuleg reynsla hafði áhrif á starfsval þeirra. Þær fjalla einnig um hugmyndafræðilega þróun innan síns fræðasviðs og hvernig hún hefur endurspeglast í lífi þeirra, störfum og rannsóknum. 
Konurnar litu yfir farinn veg, þær völdu að segja frá nokkrum þáttum af mörgum úr eigin sögu og ákváðu að túlka áhrif þeirra þátta á nám sitt og starf. Í bókinni má lesa hvaða augum þessar sextán konur líta brot úr lífi sínu, sérstaklega af hverju þær lögðu á sig langt og strangt framhaldsnám, flestar á fullorðinsárum, og hvað varð helst til þess að áhugi þeirra var svo mikill sem raun ber vitni. Þær voru í leit að aukinni þekkingu og skilningi á eigin hugsun og störfum. Sú leit hefur verið lifandi. Ritstjóri bókarinnar er Kristín Aðalsteinsdóttir.

Dreifingu annast Háskólaútgáfan
s. 525 4003
netfang: hu@hi.is

    leitinlifandi_01
Lexía - Fræði um leshömlun, kenningar og mat
Lexía er yfirlitsrit um dyslexíu. Meginefni bókarinnar er umfjöllun um fimm helstu kenningar um orsakir leshömlunar eða lesblindu. Að auki er fjallað um lestur almennt, hljóðkerfisvitund og mat á leshömlun. Bókin er ætluð kennurum, kennaranemum og öðrum þeim sem áhuga hafa á að kynna sér lestur og lestrarerfiðleika.
Rúm hundrað ár eru liðin síðan fyrst var skrifað um dyslexíu. Allar götur síðan hefur vísindasamfélagið lagt sig í líma við að skilja þessa hömlun. Talsvert hefur miðað í þessa átt enn þó má fullyrða að enn sé nokkuð í land að dyslexía sé skilin til fulls.

Höfundar bókarinnar eru Rósa Eggertsdóttir og Þóra Björk Jónsdóttir


Dreifingu annast Háskólaútgáfan
s. 525 4003
netfang: hu@hi.is

 

Andans arfur 
Út er komin hjá Háskólanum á Akureyri bókin Andans arfur - Tíu erindi um manninn, fræðimanninn, menntafrömuðinn, sálfræðinginn og bókfræðinginn Guðmund Finnbogason. Bókin er gefin út til að heiðra minningu Guðmundar Finnbogasonar sem fæddur var að Arnstapa í Ljósavatnsskarði 6. júní 1873 og til að minnast þess að árið 2003 var liðin öld frá útkomu bókar hans, Lýðmenntun. Með útgáfu þeirrar bókar var lagður grunnur að íslenskri alþýðufræðslu en í bókinni setti Guðmundur fram heildstæða menntastefnu er tók til markmiða, inntaks náms og aðferða í lýðfræðslu. Hefur áhrifa hennar gætt allt til þessa dags í íslenskum grunnskóla.
Guðmundur Finnbogason var umsvifamikill fræðimaður á sinni tíð og sannkallaður fjölfræðingur. Í bókinni Andans arfur fjalla íslenskir fræðimenn um framlag Guðmundar til fræðasviða sinna, menntunarfræða, heimspeki, sálfræði og félagsvísinda og gera jafnframt grein fyrir ýmsum áherslum hans í einstökum kennslugreinum lýðskólans. Ritstjórar bókarinnar eru Trausti Þorsteinsson og Bragi Guðmundsson.

Dreifingu annast Háskólaútgáfan
s. 525 4003
netfang: hu@hi.is

 scan2_copy
Blar Gulur Hvitur
A A A
Lára Kristín Jónsdóttir

„Ástćđan fyrir ţví ađ ég kaus ađ leggja stund á nám í hjúkrunarfrćđi er sú ađ mér finnst hjúkrun vera heillandi starf sem opnar fjölmargar dyr. “

Lára Kristín Jónsdóttir hjúkrunarfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf