Eitt af megin hlutverkum Háskólans á Akureyri er að afla þekkingar og miðla henni til samfélagsins. Háskólanum er bæði ljúft og skylt að rækta það hlutverk sitt með samstarfi við fjölmarga aðila innan og utan háskólasamfélagsins. Um er að ræða samstarf af ýmsum toga allt frá því að eiga samskipti við Góðvini Háskólans á Akureyri sem eru samtök brautskráðra nemenda yfir í það að starfa með fyrirtækjum sem vilja taka þátt í eflingu vísindalegrar þekkingar með styrkjum, faglegu innleggi eða annars konar samstarfi. Síðast en ekki síst miðlar Háskólinn á Akureyri þekkingu og á í góðri samvinnu við öll skólastig innan skólabæjarins Akureyri.
| Nemendur | Norðurslóðasamstarf | |
|
|
|
|
| Skólar | Setur og stofnanir | |
|
|
||


