Samstarf opinberu háskólanna er tveggja ára átaksverkefni sem hófst í ágúst 2010.
Verkefnið er byggt á stefnuskjali sem gefið var út af mennta- og menningarmálaráðherra þann 9. ágúst 2010. Markmið verkefnisins
snúa að eflingu íslenskra háskóla, kennslu og rannsókna, aukinni hagkvæmni í rekstri háskóla og að tryggja
háskólastarfsemi víða á landinu.
Aðilar að verkefninu eru Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli
Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum.
Smelltu hér til að komast á vef, þar sem finna má lýsingu á verkefninu,
upplýsingar um vinnuhópa sem starfað hafa á vegum verkefnisins, skjöl og gögn sem tengjast verkefninu og fréttir af framgangi verkefnisins.


