Næst komandi fimmtudag 24. nóv. fjallar Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar um erfið starfsmannamál.
Það eru nokkur stjórnunarleg verkefni sem flestir stjórnendur eiga í erfiðleikum með að framkvæma. Eitt þeirra er að ræða ófullnægjandi frammistöðu við starfsmenn og annað er að færa slæm tíðindi eins og þegar starfsmaður fær ekki stöðuhækkun eða er sagt upp störfum. Bæði verkefnin vekja upp miklar viðkvæmar tilfinningar hjá viðmælandanum og reyna á stjórnunarfærni stjórnandans. Á námskeiðinu er ferli aðgerða skipt í þrjú stig sem er í fyrsta lagi óformlegt frammistöðuviðtal, í öðru lagi formlegt frammistöðuviðtal og í þriðja lagi uppsagnarviðtal/tilfærsla.