
Svæðisleiðsögnunemar í Héðinsfirði laugardaginn 16. október sl.
Fyrsti áfangastaður æfingaferðarinnar var Möðruvellir en þar tók Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur á móti hópnum og fræddi þau um Amtmannssetrið. Því næst var farið til Siglufjarðar í Síldarminjasafnið þar sem Örlygur, safnstjóri tók á móti hópnum. Á bakaleiðinni lá leiðin í Byggðarsafnið á Dalvík og þaðan haldið að Fuglasetrinu á Húsabakka. Að síðustu var komið við á Gásum.


